Gæludýr verði varanlega leyfð í strætó

Stjórn Strætó mun óska eftir því að til­rauna­verk­efni um gælu­dýr í stræt­is­vögnum verði fram­lengt var­an­lega. Tíu kvart­anir hafa borist vegna máls­ins.

Stjórn Strætó bs. sam­þykkti á fundi sínum 1. febr­úar að óska eftir var­an­legri heim­ild til þess að leyfa gælu­dýr í stræt­is­vögnum. Heimild fyrir til­rauna­verk­efni þess eðlis sem veitt var í fyrra rennur út í lok mars.

Strætó hefur látið fram­kvæma þrjár kann­anir á við­horfi vagn­stjóra og far­þega til gælu­dýra í strætó. Sýna nið­ur­stöð­urnar að 50% þeirra eru jákvæðir eða mjög jákvæðir fyrir verk­efn­inu. Tíu kvart­anir eða ábend­ingar höfðu borist frá því að verk­efnið fór af stað þar til í lok jan­úar.

Fram­kvæmda­stjóri Strætó mun nú óska eftir var­an­legri heim­ild við umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytið. Sam­ráðs­hópur hag­hafa mun einnig meta kosti og galla við verk­efnið, í sam­ræmi við þau skil­yrði sem ráðu­neytið setti verk­efn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár