Sjöundi hver bóluefnaskammtur sem ríku löndin lofuðu hefur skilað sér til hinna fátækari

Tæpt ár er síðan fyrstu bólu­efnin komu á markað. Enn er aðeins 1,3 pró­sent fólks í fátæk­ustu löndum heims full­bólu­sett. Tæp 37 pró­sent allra jarð­ar­búa telj­ast full­bólu­sett. Gjáin á milli landa er gríð­ar­leg.

Vegglistaverk í Jóhannesarborg sem minnir á hetjur faraldursins, heilbrigðisstarfsfólkið.
Vegg­lista­verk í Jóhann­es­ar­borg sem minnir á hetjur far­ald­urs­ins, heil­brigð­is­starfs­fólkið. Mynd: EPA

Aðeins fjórtán pró­sent þeirra bólu­efna­skammta sem rík­ari þjóðir heims hétu að láta af hendi hafa skilað sér til fátæk­ari ríkja. Það hefur ekki staðið á lof­orð­unum. Til að jafna aðgengi allra að bólu­efni, heims­byggð­inni allri til heilla, hafa auð­ugri ríki heitið því að koma sam­an­lagt 1,8 millj­örðum skammta til fátæk­ari ríkja. Enn sem komið er hafa aðeins 261 milljón skammta skilað sér, að því er fram kemur í nýrri skýrslu People’s Vaccine Alliance, sam­taka sem Oxfam, ActionAid og Amnesty International standa m.a. að. Nú fer að líða að því að ár sé liðið frá því að fyrstu bólu­efnin gegn COVID-19 komu á markað. 37 pró­sent jarð­ar­búa telj­ast full­bólu­sett en þó hefur aðeins 1,3 pró­sent fólks í fátæk­ustu löndum heims verið bólu­sett að fullu.

Bretland lof­aði 100 millj­ónum skammta en aðeins 9,6 millj­ónir eru komnir á áfanga­stað, segir í skýrsl­unni, eða innan við 10 pró­sent. Kanada hefur afhent 8 pró­sent af þeim 40 milljón skömmtum sem stjórn­völd lof­uðu. Banda­ríkin hafa staðið sig betur og um 16 pró­sent af þeim 1,1 millj­arði skammta sem stjórn­völd lof­uðu fátæk­ari ríkjum hafa þegar kom­ist á leið­ar­enda.

[adspot]

Helstu bólu­efna­fram­leið­endur heims hétu því að setja sam­tals 994 millj­ónir skammta inn í COVAX-sam­starfið. Frá Johnson & Johnson, Moderna, AstraZeneca og Pfizer hafa þó aðeins 120 millj­ónir skammta, 12 pró­sent af því sem lofað var, skilað sér.

Robbie Sil­verman, sem starfar hjá Oxfam segir að nið­ur­stöður skýrsl­unnar sýni að rík­ari löndin hafi brugð­ist. Sú leið sem COVAX fór hafi einnig brugð­ist. „Eina leiðin til að stöðva far­ald­ur­inn er að deila tækni og þekk­ingu með öðrum fram­leið­endum svo að allir, hvar sem þeir búa, hafi aðgang að hinum lífs­nauð­syn­legu bólu­efnum.“

Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin, WHO, hefur ítrekað bent á nauð­syn þess að koma miklu magni bólu­efna til fátæk­ari ríkja fyrir árs­lok. Samkvæmt því sem fram kemur í skýrsl­unni eru ríkin sem hafa heitið bólu­efn­unum hins vegar flest að vinna sam­kvæmt eigin áætl­unum sem miði við afhend­ingar ein­hvern tím­ann á næsta ári. Þær tafir munu, að því er segir í skýrsl­unni, valda ónauð­syn­legu mann­falli.

„Heil­brigð­is­starfs­menn eru að deyja og börn að missa for­eldra sína og afa og ömmu,“ segir Maaza Seyoum, einn af full­trúum Afríku í People’s Vaccine Alliance. „Enn á eftir að bólu­setja um 99% af fólki í fátæk­ari ríkjum og við höfum fengið nóg af þessum lof­orðum sem stand­ast svo ekki.

Fleiri aðilar hafa bent á nauð­syn þess að hægt verði að fram­leiða bólu­efni víðar í heim­inum. Bæði stjórn­völd á Indlandi og í Suður-Afríku hafa skorað á Alþjóða við­skipta­stofn­un­ina (WTO) að beita sér í mál­inu og aflétta kröfum um einka­leyfi á bólu­efni og lyf gegn COVID-19. Yfir hund­rað ríki og mann­rétt­inda­sam­tök hafa tekið undir áskor­un­ina sem myndi þýða að meira yrði fram­leitt af bólu­efnum. Sem er það sem þarf.

En stjórn­völd í Bret­landi, Sviss og Evr­ópu­sam­bandið eru meðal þeirra sem eru þess­ari leið mót­fallin.

Guardian hefur eftir Tim Bierley, sem starfar með mann­rétt­inda­sam­tök­unum Global Justice Now, að þessir aðilar standi í vegi fyrir því að fram­boð á bólu­efnum auk­ist og við­haldi þannig því ástandi að fátæk­ari ríki séu háð þeim auð­ugri um fram­leiðslu og dreif­ingu bólu­efn­anna.

Talsmenn bresku rík­is­stjórn­ar­innar segja að Bretland sé „stolt af því“ að leika lyk­il­hlut­verk í því verk­efni að búa til og dreifa bólu­efnum gegn COVID-19. Stjórn­völd vilji „raun­sæjar“ lausnir, m.a. að styðja áfram COVAX-sam­starfið og finna leiðir til að leysa flösku­hálsa í fram­leiðslu­ferl­inu öllu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár