Eimskip hættir að koma við í Múrmansk „í ljósi stöðunnar“

Eim­skipa­fé­lag Íslands hefur tekið ákvörðun um að stefna skipum sínum ekki til Múrmansk í norð­vest­ur­hluta Rúss­lands á næst­unni, en borgin er hluti af einni sigl­inga­leið félags­ins.

Múrmansk hefur verið hluti af svokallaðri appelsínugulri siglingaleið Eimskipafélagsins.
Múrmansk hefur verið hluti af svo­kall­aðri app­el­sínugulri sigl­inga­leið Eim­skipa­fé­lags­ins. Mynd: Skjáskot/RÚV

Skipa­fé­lagið Eimskip hefur „í ljósi stöð­unnar“ tekið ákvörðun um að hætta tíma­bundið við­komum í Múrmansk, sem er eina rúss­neska borgin sem er hluti af sigl­inga­á­ætlun félags­ins.

Þetta kemur fram í svari fyr­ir­tæk­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans, sem laut að því hvort inn­rás Rúss­lands í Úkraínu og afleidd áhrif hern­að­ar­að­gerð­anna myndu hafa ein­hver áhrif á sigl­ingar félags­ins í rúss­neskar hafnir.

Viðkoman í Múrmansk hefur verið hluti af svo­kall­aðri app­el­sínugulri leið í sigl­inga­á­ætlun Eimskipa, en sigl­inga­leiðin þræðir sig frá Englandi og Hollandi norður með­fram ströndum Noregs og alla jafna yfir til rúss­nesku borg­ar­innar.

[adspot]

Nú verður Kirkenes í Norður-Noregi þó enda­stöð app­el­sínu­gulu leið­ar­innar, að minnsta kosti um ein­hvern tíma, sam­kvæmt Eddu Rut Björns­dóttur, fram­kvæmda­stjóra mannauðs- og sam­skipta­sviðs hjá fyr­ir­tæk­inu.

Þjónustan gagnvart Úkraínu, Rússlandi og Hvíta-Rússlandi skert

Eimskip sagði frá því í til­kynn­ingu í upp­hafi mán­aðar að sér­fræð­ingar félags­ins fylgd­ust grannt með þróun mála í kjöl­far inn­rásar Rússa í Úkraínu.

„Skipa­fé­lög sem eru sam­starfs­að­ilar Eimskips hafa ýmist stöðvað eða skert þjón­ustu sína til þeirra hafna sem tengj­ast Úkraínu, Rúss­landi og Hvíta-Rúss­landi þannig að þjón­usta Eimskips gagn­vart þessum löndum er skert eins og staðan er núna,“ sagði í þeirri til­kynn­ingu.

Þar var þess einnig getið að óvissa ríkti um afgreiðslu í höfnum í Evrópu á flutn­ingum til og frá þessum löndum og að félagið hygð­ist vinna náið með við­skipta­vinum sínum og við­eig­andi yfir­völdum í þessum aðstæðum til að tryggja bestu mögu­legu lausnir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár