Össur og Bjarni efstir í prófkjörum – Engin sjálfstæðiskona í efstu fjórum í SV-kjördæmi

Össur Skarphéðinsson og Bjarni Benediktsson.
Össur Skarp­héð­ins­son og Bjarni Bene­dikts­son. Mynd: Samsett mynd

Össur Skarp­héð­ins­son þing­maður varð efstur í próf­kjöri Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík. Úrslitin voru til­kynnt núna í kvöld. Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir þing­maður varð í öðru sæti, Eva Bald­urs­dóttir lög­fræð­ingur í því þriðja og Helgi Hjörvar þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í fjórða sæti. Athygli vekur að Val­gerður Bjarna­dóttir þing­maður varð ekki meðal efstu fjög­urra. Össur og Sigríður Ingi­björg munu því leiða lista Sam­fylk­ing­ar­innar í sitt­hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu í Alþing­is­kosn­ing­unum 29. októ­ber.

Fyrstu tölur í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi voru kynntar í kvöld­frétta­tíma RÚV. Fjögur efstu sætin verða skipuð körlum. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, var efstur þegar búið var að telja 1.008 atkvæði af 3.154 greiddum atkvæðum. Bjarni lýsti yfir von­brigðum með að vera ekki með konu ofar­lega á list­anum. Hann segir flokk­inn þurfa að kanna það hvernig Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn geti komið því skýrt til kynna að flokk­ur­inn ætli konur og karla jafnan hlut.

Jón Gunn­ars­son þing­maður var í öðru sæti, Óli Björn Kárason rit­stjóri í þriðja sæti og Vil­hjálmur Bjarna­son þing­maður var í því fjórða. Karen Elísabet Hall­dórs­dóttir er efsta konan á list­anum og Bryndís Har­alds­dóttir kemur á hæla hennar í sjötta sæti. Athygli vakti að Elín Hirst þing­maður flokks­ins í kjör­dæm­inu var ekki á meðal sex efstu. Hún sagði nið­ur­stöð­una vera von­brigði.

Þrjú önnur próf­kjör fóru fram í dag. Sam­fylk­ingin hélt einnig próf­kjör í Norð­vest­ur­kjör­dæmi og í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hélt einnig próf­kjör í Suð­ur­kjör­dæmi. Nið­ur­staðna úr öllum próf­kjör­unum er að vænta í kvöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár