Þingrofstillaga komin fram og kosningar staðfestar 29. október

Tillaga um þing­rof hefur verið und­ir­rituð af Guðna Th. Jóhann­essyni, for­seta Íslands. Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra til­kynnti þetta við upp­haf þing­fundar í dag.

Það er því ljóst að þing verður rofið 29. októ­ber og kosn­ingar fara fram þann dag. Engu að síður mun þing halda áfram að starfa næstu daga í sam­ræmi við end­ur­skoð­aða starfs­á­ætlun þings­ins.

Að lok­inni til­kynn­ingu Sigurðar Inga tóku til máls for­menn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna og minntu á ástæðu þess að þing væri nú rofið og boðað til kosn­inga fyrr en áætlað hefði verið. Það væri vegna hneyksl­is­mála ráð­herra í rík­is­stjórn­inni, það er afhjúp­anir Panama­skjal­anna, sem sýndu að þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, auk fjár­mála­ráð­herra og inn­an­rík­is­ráð­herra, hafi átt félög í skatta­skjólum.

Nú þegar þing­rof­s­til­laga er komin fram verður hægt að hefja utan­kjör­fund­ar­at­kvæða­greiðslu til kosn­inga. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár