Spilin lögð á borðið - Stjórnarmyndun að hefjast

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, hefur í dag form­lega vinnu við að mynda rík­is­stjórn með stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum af nýliðnu þingi.

Katrín Jakobsdóttir er formaður Vinstri grænna.
Katrín Jak­obs­dóttir er for­maður Vinstri grænna. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Vinna hefst í dag við að mynda rík­is­stjórn með sam­starfi Vinstri grænna, Sam­fylk­ing­ar­innar, Pírata og Fram­sókn­ar­flokks­ins. Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, hefur fengið stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boðið, eftir fund með Guðna Th. Jóhann­essyni, for­seta Íslands.

Þing­meiri­hluti þess­ara flokka er naumur, en hann telur 32 þing­menn af 63, og því eins manns meiri­hluta. Vinstri græn eru með stærsta þing­flokk­inn, 11 þing­menn, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn með 8, og Sam­fylk­ingin 7 og Píratar sex.

Formenn og for­ystu­fólk flokk­anna mun taka þátt í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­unum, en Katrín hefur sagt að helst sé horft til þess að mynda stjórn um upp­bygg­ing­ar­verk­efni, á sviði inn­viða, sem nauð­syn­legt sé að fara í um þessar mundir, að mati allra flokk­anna sem eiga aðild að við­ræð­unum. Er þar meðal ann­ars átt við aukna inn­spýt­ingu í mennta- og heil­brigð­is­málum, auki fleiri verk­efna, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Þrátt fyrir að þessar við­ræður séu nú farnar í gang, hafa verið virk sam­töl á milli flokk­anna und­an­farna daga, enda ekki aug­ljóst að það tak­ist að mynda rík­is­stjórn fljótt, eins og reynslan frá því í fyrra sýnir glögg­lega. Þá tóku stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður tvo mán­uði, og erf­ið­lega gekk að koma saman stjórn.

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hefur sagt að það sé ekki skil­yrði af hálfu flokks­ins, að það fari fram þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið, og sagði í við­tali við RÚV í gær að nú yrði að horfa raun­sætt á stöð­una og ná saman um allra brýn­ustu málin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár