Macron fengi 60% ef kosið væri nú

Æðsti hræðsluklerkur og Holland-herma takast á í frönsku for­seta­kosn­ing­unum. Macron hefur yfir­hönd­ina og stuðn­ing Barack Obama.

Marine Le Pen og Emmanuel Macron eru í forsetakjöri. Þau tókust á í sjónvarpskappræðum í gærkvöldi.
Marine Le Pen og Emmanuel Macron eru í for­seta­kjöri. Þau tók­ust á í sjón­varp­s­kapp­ræðum í gær­kvöldi. Mynd: EPA

Emmanuel Macron, for­seta­fram­bjóð­andi í Frakk­landi, mundi fá um 60 pró­sent atkvæða í seinni umferð for­seta­kosn­ing­anna ef kosið væri nú. Kosið verður á sunnu­dag­inn. Marine Le Pen, fram­bjóð­andi Þjóð­fylk­ing­ar­innar, mundi fá um 40 pró­sent.

Aðeins tveir fram­bjóð­endur eru í kjöri í seinni umferð frönsku kosn­ing­anna en það eru þeir fram­bjóð­endur sem hlutu mest og næst mest fylgi í fyrri umferð­inni. Í seinni umferð­inni þarf fram­bjóð­andi að hljóta meira en helm­ing atkvæð­anna til þess að ná kjöri og taka við af Francois Hollande.

[links]Macron og Le Pen mætt­ust í sjón­varp­s­kapp­ræðum í frönsku sjón­varpi í gær og þótti flestum Macron hafa staðið sig betur. Í frétt breska rík­is­sjón­varps­ins, BBC, er fjallað um skoð­ana­könnun sem gerð var eftir kapp­ræð­urnar þar sem 63 pró­sent þeirra sem gáfu svar sögðu Macron hafa haft betur.

Macron hefur borist stuðn­ingur víða að, ekki síst úr alþjóða­sam­fé­lag­inu enda er hann tals­maður frek­ari Evr­ópu­sam­vinnu, and­stætt Le Pen sem hefur bein­línis heitið því að draga úr alþjóða­sam­starfi.

Einn þeirra sem lýst hefur yfir stuðn­ingi við Macron er Barack Obama, fyrr­ver­andi for­seti Banda­ríkj­anna. Obama hefur áður talað opin­skátt um að Evr­ópu­sam­bands­ríkin verði að standa saman. Hann lýsti einnig yfir stuðn­ingi við þá sem börð­ust fyrir áfram­hald­andi aðild Bret­lands að ESB fyrir um ári síðan.

[adspot]

Æðsti hræðsluklerkur og Holland-herma

Í frétta­skýr­ingu sem birt­ist hér á Kjarn­anum í gær­kvöldi er fjallað um fram­vindu umræð­anna, þar sem Le Pen gekk mun lengra en hún hefur áður gert í stjórn­mála­um­ræðum við keppi­naut sinn. Hún gjamm­aði frammí, gekk fram af þátta­stjórn­endum og líkti Macron saman við sitj­andi for­seta.

„Bara eins og Hollande!“ sagði Le Pen.

Macron hélt ró sinni í kapp­ræð­unum og gaf sér tíma til þess að útskýra stefnu­mál sín. Hann beit þó til baka og sak­aði and­stæð­ing sinn að ljúga blákalt að frönsku þjóð­inni. Macron sagði Le Pen heldur ekki hafa lagt neinar lausnir til og aðeins alið á áhyggjum og ótta meðal Frakka.

„Á móti mér situr æðsti hræðsluklerkur Frakk­lands,“ sagði Macron.

Áætlað var að um það bil 18 pró­sent kjós­enda í Frakk­landi hafi ekki verið búinn að gera upp hug sinn fyrir kapp­ræð­urnar.

Macron hefur notið mun meira fylgis en Le Pen síðan fyrri umferð kosn­ing­anna fór fram. Ef eitt­hvað er að marka skoð­ana­kann­anir þá hafa ríf­lega 60 pró­sent hugsað sér að kjósa hann en tæp­lega 40 pró­sent Le Pen.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár