Harðvítugar kappræður

Sögu­legar sjón­varp­s­kapp­ræður í Frakk­landi í kvöld gætu sett strik í reikn­ing­inn í kosn­ing­unum á sunnu­dag­inn.

Macron og Le Pen mættust í sjónvarpssal.
Macron og Le Pen mætt­ust í sjón­varps­sal. Mynd: EPA

Kapp­ræður Marine Le Pen og Emmanuel Macron í kvöld fara senni­lega í sögu­bæk­urnar sem þær svæsn­ustu. Þær voru síður en svo virðu­legar eða mál­efna­legar. Ýmislegt bar á góma: Evr­ópu­sam­bandið, skóla­mál, efna­hags­mál, og hryðju­verk og stríð en mesta athygli vakti ásak­anir þeirra beggja um lygar, hatur og spill­ingu.

Macron átti í vök að verjast

Marine Le Pen reyndi lítið að vera for­seta­leg. Hún sótti hart og ásak­aði Macron um að vera þjón auð­valds­ins, kerf­is­ins, kall­aði hann „Litla Hollande“ og lét ýmis­legt flakka, bæði kjafta­sögur og slúður um meinta vin­áttu Macron við fjár­mála­öflin, ætti aflands­reikn­inga, að hann væri mað­ur­inn á bak­við skatta­rann­sóknir á Front National, að Macron væri jafn­vel homma­hat­ari. Öllu minna bar á stefnu­málum hennar eða rök­stuðn­ingi fyrir þessum ásök­unum.

[links]Emmanuel Macron átti því í vök að verj­ast fyrsta klukk­tím­ann en sótti á þegar leið á seinni tím­ann. Hann náði, þrátt fyrir enda­laus frammíköll og hæðn­is­hlátur, að útskýra stefnu­mál sín og halda kyrrð sinni. Le Pen var hins vegar far­inn að flissa óspart í lokin, rót­aði stöðugt í möppu sinni sem hún bar mér sér. Hún tal­aði um að kasta evr­unni fyrir róða, taka aftur upp franka, en samt halda evr­unni. Pen­inga­stefna sem erfitt er að skilja. Hún átti því ekki góðan loka­sprett og gekk fram af þátt­ar­stjórn­endum í loka­orðum Macron, er hún gjamm­aði hátt: „Comme Hollande?“ eða „bara eins og Hollande?“.

Gekk hún of langt?

Menn velta nú vöngum yfir þessum þætti. Gekk Marine Le Pen of langt? Svona fram­koma hefur varla sést áður í lokaslag í frönskum for­seta­kosn­ingum. Það er varla hægt að telja upp allar þær röngu full­yrð­ingar sem hún lét falla. Macron sagði Þjóð­fylk­ing­una ala á hatri, Le Pen færi með dylgjur og stað­leysur, hefði ekk­ert fram að færa nema ásak­anir og lygar.

Hörðustu kjós­endur Le Pen munu senni­lega kjósa hana áfram. En það er óvíst hvað íhalds­menn sem hafa hug­leitt að kjósa hana gera eða rót­tækir vinstri menn. Um 20 milljón manns fyld­ust með útsend­ing­unni – þetta er eina skiptið sem fram­bjóð­end­urnir mæt­ast.

Tóninn í sam­fé­lags­miðlum er sá að Le Pen hafi gengið of langt. 63% áhorf­enda BFMTV frönsku frétta­stöðv­ar­innar, sem sýndi beint frá kapp­ræð­unum, fannst Macron standa sig betur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár