Guðmundur Steingrímsson hefur engan áhuga á formannsslag

Guð­mundur Stein­gríms­son, for­maður Bjartrar fram­tíðar, seg­ist hafa engan áhuga á því að taka þátt í for­manns­slag. Hann sé til­bú­inn að gegna öðrum hlut­verkum innan flokks­ins heldur en að vera for­maður hans og styðji til­lögu um að helstu emb­ætti flokks­ins róter­ist á milli fólks. „Ég vil ganga í öll þau störf sem flokks­menn kunna að fela mér og gera mitt allra besta til að styðja aðra, sem aðhyll­ast okkar hug­sjónir, í sömu verkum. Það á eng­inn að starfa í Bjartri fram­tíð með því skil­yrði að hann sé for­maður, eins og það sé aðal­at­riðið. Það gildir um mig, og aðra.“

Þetta segir Guð­mundur í færslu á Facebook í dag. Eru þetta hans fyrstu við­brögð frá því að Heiða Kristín Helga­dóttir, fyrrum stjórn­ar­for­maður flokks­ins og vara­þing­maður, sagði í Viku­lokum á Rás 1 á laug­ar­dag að hún sé til­bú­inn að ger­ast for­maður flokks­ins. Árs­fundur Bjartrar fram­tíðar verður hald­inn í byrjun sept­em­ber.

„Ég hef þá trú að í hverjum erf­iðum kring­um­stæðum, hvort sem það er innan flokks, í þjóð­fé­lags­mál­unum eða hvar ann­ars staðar, sé hægt finna leið sem ein­kenn­ist af kær­leika. Hann er kraftur sem er alltaf til staðar, en getur verið mis­erfitt að finna. Ég veit þetta kann að hljóma full hug­ljúft í eyrum ein­hverra, en ég meina þetta. Kær­leikur er kraftur sem gerir aðstæður betri,“ segir Guð­mundur á Facebook. færsl­una má lesa í heild hér að neðan.



Staða Bjartrar fram­tíðar hefur verið mér og fleirum til­efni til mik­illa og djúpra heila­brota um nokk­urt skeið. Ég hef ...

Posted by Guð­mundur Stein­gríms­son on Monday, 10 August 2015

Fylgi Bjartrar fram­tíðar hefur hríð­fallið und­an­farið.

Í könnun sem MMR birti í

vik­unni sögð­ust ein­ungis 4,4 pró­sent kjós­enda ætla að kjósa flokk­inn. Miðað við það fylgi myndi Björt fram­tíð ekki ná inn manni í kom­andi kosn­ingum. Í

nýj­ustu könnun Gallup

mælist fylgi Bjartrar fram­tíðar fimm pró­sent Flokk­ur­inn mæld­ist með um 20 pró­sent fylgi í könn­unum í fyrra­haust.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár