„Gervigreindin hefur aðeins augun fyrir aftan hnakkann“

Fagur­fræði gervi­greindarinnar byggir á formum og hugmyndum sem þegar eru fyrir hendi, að sögn prófessors. Vinsældir hennar á meðal Donalds Trump og stuðnings­manna hans vekja athygli.

Gervigreindarmynd af Donald Trump
Gervi­greind­ar­mynd af Donald Trump For­set­inn birti þessa mynd af sér á sam­fé­lags­miðlum þegar rætt var um hver ætti að verða næsti páfi kaþ­ólsku kirkj­unnar.

Mikið af því myndmáli sem gervi­greindin hefur úr að moða nýtist öfga­hægriöflum eins og MAGA-hreyfingu Donalds Trump. Fagur­fræði hennar byggir þannig á formum og hugmyndum sem nú þegar eru til.

Þetta segir Guðmundur Oddur Magnússon, eða Goddur, fyrr­verandi prófessor við Lista­háskóla Íslands. „Gervi­greindin hefur aðeins augun fyrir aftan hnakkann,“ segir hann. „Hún vinnur bara með það sem er, getur sett það í nýtt samhengi og séð frá nýju sjónar­horni en getur ekki séð fram fyrir sig. Hún vinnur bara með form og hugmyndir sem eru þegar fyrir hendi.“

Hann segir þetta í raun og veru vera skilgreininguna á póst­módernisma, lista­stefnu sem hóf innreið sína á 20. öldinni og blandar saman fyrri stílum á sama tíma og stórum kenningum og hugmynda­fræði er hafnað.

„Það er enginn eins frumlegur og hann telur sig vera

Goddur segir gervi­greindina þannig vera jafn­öfluga og póst­móderníska listamenn. „Það er enginn …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gervigreindin tekur yfir

Mest lesið undanfarið ár