Haraldur Benediktsson ætlar ekki að þiggja annað sætið

Oddviti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi ætlar ekki að taka sæti á lista flokks­ins í kjör­dæm­inu ef vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins sigrar hann í odd­vitaslag um kom­andi helgi.

Haraldur Benediktsson.
Haraldur Bene­dikts­son. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Haraldur Bene­dikts­son, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, ætlar ekki að þiggja annað sæti á lista flokks­ins fari svo að hann tapi odd­vitaslag í próf­kjöri flokks­ins í kjör­dæm­inu um kom­andi helgi.

Frá þessu greinir hann í við­tali við Bæjarins besta í dag.

Þar segir hann að feli flokks­menn öðrum odd­vita­hlut­verki sé það skýr nið­ur­staða. „Það getur ekki verið gott fyrir nýjan odd­vita að hafa þann gamla í aft­ur­sæt­inu.“

[adspot]Haraldur leiddi lista flokks­ins í kjör­dæm­inu til síð­ustu kosn­inga, en í 2. sæti list­ans var Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir. Ýmislegt er hins vegar breytt síðan árið 2017.

Þórdís Kolbrún hefur verið ráð­herra síðan þá og var sömu­leiðis kjörin vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins árið 2018.

Hún gaf það strax síð­asta haust að hún ætl­aði ekki að færa sig yfir í annað kjör­dæmi og síðar að hún sækt­ist eftir efsta sæti list­ans.

Það ætlar Haraldur þó ekki að láta af hendi þegj­andi og hljóða­laust, en hann gaf það út strax í febr­úar að hann myndi sækj­ast eftir trausti flokks­manna í kjör­dæm­inu til þess að leiða list­ann áfram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár