Og hvað á bóluefnið að heita?

Hvernig er nafn valið á bólu­efni sem á eftir að breyta heim­inum? Efni sem var þróað á met­hraða og er á allra vörum – og rennur bráð­lega um margra æðar?

Bóluefni Pfizer og BioNtech fékk nafnið Comirnaty.
Bóluefni Pfizer og BioNtech fékk nafnið Comirnaty. Mynd: EPA

„Allir sem ég þekki eru að reyna að draga nafnið upp úr mér. En ég hef ekki einu sinni sagt kon­unni minni hvert það er,“ sagði Scott Piergrossi, fram­kvæmda­stjóri hjá Brand Institude, sem tók þátt í því að finna nöfn á nokkur þeirra bólu­efna gegn COVID-19 sem nú eru þegar farin að líta dags­ins ljós. Þetta var haft eftir honum áður en bólu­efni Pfizer-BioNtech fékk mark­aðs­leyfi í Banda­ríkj­unum og Evrópu, fyrst allra slíkra.

Yfir­leitt er tek­inn góður tími í að finna nafn á lyf og bólu­efni. Jafnvel tvö ár. Enda hefur hingað til tekið ára­tug eða lengur að þróa þau, prófa og koma í gegnum nál­ar­auga lyfja­stofn­ana.

[adspot]

En allt er með öðru sniði í heims­far­aldri kór­ónu­veirunnar. Bóluefni hafa verið þróuð á met­tíma, á um tíu mán­uðum, og því urðu þeir sem hafa það hlut­verk að finna nafn líka að haska sér.

Vöru­merkja­sér­fræð­ingar segja að þegar komi að nöfnum á lyfjum og bólu­efnum þurfi fyrst og fremst að hafa tvennt í huga: Að nafnið kveiki jákvæðar til­finn­ingar en sé þó ekki það flippað að það því verði hafnað af íhalds­sömum stofn­unum.

Banda­ríska lyfja­fyr­ir­tækið Pfizer og þýska líf­tækni­fyr­ir­tækið BioNtech tóku saman höndum um þróun bólu­efnis gegn COVID-19 og hófust klínískar próf­anir á því þegar í apríl. Á þró­un­ar­stig­inu var það nefnt BNT162b2 en bók­stafirnir fremst í heit­inu vísa til BioNtech. Þegar ljóst var að efnið væri að virka eins og stefnt var að og sótt var um mark­aðs­leyfi hafði það fengið nafnið Comirnaty.

Þetta er samsett orð

Rýnum aðeins í þetta nafn.

Í því er blandað saman ýmsu; nafni sjúk­dóms, nafni aðferð­ar­innar sem notuð var við þró­un­ina auk þess sem í því leyn­ist einnig til­vísun í fyrir hverja það er og hverju það á að skila.

Piergrossi er loks til­bú­inn að leysa frá skjóð­unni og segir nafnið, sem hann tók þátt í að finna, vísa til eft­ir­far­andi hluta: COVID-19, mRNA, sam­fé­lags (community) og ónæmis (imm­unity).

Bólu­efnið Comirnaty byggir á svo­kall­aðri mRNA-tækni en slík efni inni­halda hluta af erfða­efni kór­ónu­veirunnar SARS-CoV-2 sem veldur sjúk­dómnum COVID-19. Þetta er í fyrsta skipti sem þess­ari tækni er beitt við þróun bólu­efna.

Þar sem tæknin er svo nýstár­leg þótti til­efni til að koma nafni hennar inn í nafn loka­af­urð­ar­innar: Bólu­efn­is­ins sjálfs.

Frátóku nöfn sem innihéldu Wuhan

„Þetta var krefj­andi verk­efni miðað við önnur því það eru svo miklar vonir bundnar við þessa vöru í efna­hags­legu, heilsu­fars­legu og til­finn­inga­legu til­liti,“ segir Piergrossi.

Bóluefni Moderna, sem einnig byggir á mRNA-tækn­inni, hlaut náð fyrir augum Evrópsku lyfja­stofn­un­ar­innar á mið­viku­dag. Ýmsar vanga­veltur hafa verið um hvaða nafn bólu­efnið myndi fá en hefð er fyrir því að upp­lýsa um slíkt eftir að mark­aðs­leyfi fæst.

Í haust óskaði fyr­ir­tækið eftir að skrá tvö vöru­merki: Spykevax og Spikevax. „Spike“ vísar til gadda­prótein­anna sem ein­kenna kór­ónu­veiruna og „vax“ til bólu­setn­ingar/bólu­efnis (vaccination, vaccine). Áður hafði fyr­ir­tækið tryggt sér vöru­merkin Mnravax, Mvax og Covidvax. Þegar í jan­úar á síð­asta ári, skömmu eftir að far­ald­ur­inn kom upp í Kína hafði fyr­ir­tækið skráð nöfn sem vís­uðu til borg­ar­innar þar sem veiran er talin eiga upp­tök sín, Wuhan. Þau nöfn, m.a. Wuhan Vax, hafa öll verið slegin út af borð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bóluefni

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár