Sat í bílnum, hlustaði á útvarpið og var brugðið yfir stuðningi við aðgerðir Rússa

Nokkrir þing­menn lýstu yfir stuðn­ingi við Úkraínu á Alþingi í dag. Þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks var brugðið er hún heyrði hlust­endur hringja inn í útvarps­þátt í gær og lýsa yfir stuðn­ingi við aðgerðir Rússa.

Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins hvatti þingmenn og stjórnvöld til að taka samtal við þjóðina um stuðning við fullveldi Úkraínu.
Diljá Mist Ein­ars­dóttir þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hvatti þing­menn og stjórn­völd til að taka sam­tal við þjóð­ina um stuðn­ing við full­veldi Úkraínu. Mynd: Bára Huld Beck

Dilja Mist Ein­ars­dóttir þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins sagði frá því í ræðu­stól Alþingis í dag að henni hefði verið brugðið er hún hlust­aði á útvarpið á leið heim úr vinnu í gær og heyrði aðra hlust­endur hringja inn í útvarps­þátt og lýsa yfir stuðn­ingi við aðgerðir Rúss­lands í Úkraínu.

„Eins og það var jákvætt að hlusta á skila­boð þing­manna hér í gær var mér brugðið að hlusta á inn­hring­ingar lands­manna í útvarps­þætti á leið heim úr þing­inu í gær. Þar hafði hver hlust­and­inn á fætur öðrum sam­band til þess að lýsa yfir stuðn­ingi við aðgerðir Rúss­lands og kvarta yfir ein­hliða frétta­flutn­ingi af atburða­rásinni hér­lendis,“ sagði Diljá Mist í ræðu sinni undir liðnum störf þings­ins.

Hvatti hún í kjöl­farið þing­menn og stjórn­völd til þess að „taka þetta sam­tal við þjóð­ina„ og halda þeim sjón­ar­miðum á lofti sem heyrð­ust í þing­inu í gær, um stuðn­ing við full­veldi Úkraínu og for­dæm­ingu á brotum Rúss­lands á alþjóða­lögum.

„Það eiga enda fáar þjóðir meira undir því en við Íslend­ingar að brot á alþjóða­lögum séu ekki liðin,“ sagði Diljá og bætti við að inn­rás Rúss­lands í full­valda Evr­ópu­ríki væri sam­eig­in­legt við­fangs­efni Evr­ópu­þjóða.

[adspot]

„Við höfum sofnað á verð­inum og þrátt fyrir ógn­ar­til­burði og árás­ar­girni Rúss­lands und­an­farin ár hafa for­ystu­menn í Evrópu verið mátt­lausir og jafn­vel aukið á póli­tísk erfið við­skipta- og hags­muna­tengsl við rúss­nesk stjórn­völd. Meira að segja hér­lendis heyr­ast raddir um að fleygja sam­stöð­unni við evr­ópsk ríki fyrir við­skipta­hags­muni og það ekki bara í síð­deg­is­út­varpi. Það væri algjör afleikur fyrir smá­ríkið Ísland sem á allt sitt undir því að alþjóða­lög séu virt af öðrum þjóðum,“ sagði Diljá Mist.

Ekkert mjálm, engin vettlingatök

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar gerði stuðn­ing við Úkraínu og refsi­að­gerðir gagn­vart Rúss­landi einnig að umtals­efni í ræðu sinni undir liðnum störf þings­ins í dag.

Hún sagði að það skipti máli að Íslend­ingar væru skýrir í sinni afstöðu. „Með fullri virð­ingu finnst mér við þurfa að vera aðeins meira afger­andi í okkar afstöðu þegar kemur að þessu máli,“ sagði Þor­gerður Katrín og bætti við að henni væri í huga afstaða Íslands gagn­vart efna­hags­þving­unum sem ákveðið var að ráð­ast í gegn Rússum eftir inn­limun Krím­skaga árið 2014.

„Mér fannst utan­rík­is­ráð­herra vera svo­lítið einn á báti um tíma, því það var for­ystu­fólk innan þáver­andi stjórn­ar­flokka, Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks, auk ann­arra, auk yfir­gengi­legs lobbý­isma af hálfu SFS og útgerða, útgerð­ar­blaðs­ins, að taka frekar við­skipta­hags­muni fram yfir sam­stöðu þjóða. Við­skipta­hags­muni fram yfir hags­muni okkar Íslend­inga sem smá­þjóðar af að verja landa­mæri okkar. Þá verðum við að gæta okkar og standa með lýð­ræð­is­þjóðum þegar við erum vitni að jafn miklum yfir­gangi og Rússar eru að sýna núna gagn­vart Úkraínu,“ sagði Þor­gerður Katrín og bætti við:

„Þannig að mín skila­boð virðu­legi for­seti; ekk­ert mjálm, engin vett­linga­tök í nálgun Íslands gegn Rússum vegna þeirrar stöðu sem nú er komin upp í Úkraínu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár