„Þær þurfa að lifa við afleið­ingar þessa ofbeld­is“

Lögmaður tvegga sómal­skra kvenna sem senda á úr landi segir að þær muni við end­ur­komu til Grikk­lands aftur lenda á göt­unni án við­un­andi hús­næðis og ber­skjald­aðar.

Claudia Ashanie Wil­son, lög­maður tveggja kvenna sem íslensk stjórn­völd ætla að senda til baka til Grikk­lands, segir í sam­tali við Kjarn­ann að þessi tvö mál eigi það sam­eig­in­legt að þau varði konur í sér­stak­lega við­kvæmri stöðu sem orðið hafa fyrir fjöl­mörgum mann­rétt­inda­brotum og kyn­bundnu ofbeldi í heima­ríki, á leið til Grikk­lands og ekki síður í Grikk­landi.

Kjarninn tal­aði við kon­urnar tvær á dög­unum og fjall­aði ítar­lega um málið um helg­ina.

„Þær eru fórn­ar­lömb mansals, kyn­færalim­lest­ing­ar, nauð­gana, þar með talið hópnauð­gana, ýmiss and­legs og lík­am­legs ofbeld­is, jafn­vel frá lög­reglu í Grikk­landi. Þær þurfa að lifa við afleið­ingar þessa ofbeld­is, meðal ann­ars þurfa báðar á skurð­að­gerð að halda, sem var hafnað af stjórn­völdum þótt það sé mat sér­fróðs læknis að þessar aðgerðir séu þeim nauð­syn­leg­ar,“ bendir Claudia á.

Hvað telur þú að muni ger­ast fyrir þessar tvær konur þegar þær verða sendar til Grikk­lands?

„Þrátt fyrir sér­stak­lega við­kvæma stöðu þeirra, hina óum­deildu stað­reynd að þær verði við end­ur­komu til Grikk­lands aftur sendar út á göt­una án við­un­andi hús­næðis og ber­skjald­aðar – enda hafa íslensk stjórn­völd ekki dregið trú­verð­ug­leika frá­sagna þeirra í efa – telja stjórn­völd að það sé öruggt fyrir þær að snúa aftur til Grikk­lands,“ segir hún.

[links]Claudia telur að sú nið­ur­staða end­ur­spegli ann­ars vegar enn harð­ari stefnu íslenskra stjórn­valda í mál­efnum umsækj­enda um alþjóð­lega vernd, sem hún full­yrðir að eigi bara eftir að versna, nema Íslend­ingar breyti við­eig­andi lögum og fram­kvæmd þeirra. Hins vegar end­ur­spegli sú nið­ur­staða afleið­ingu þess að kynja­jafn­rétti og kynja­sjón­ar­mið nái ekki til mál­efna kvenna á flótta.

Hvað ert þú núna að gera til að sporna við því að þær verði sendar úr landi?

„Ég hef starfað á þessu sviði í mörg ára en hef aldrei séð stjórn­völd leggja mat á umsóknir við­kvæmra kvenna þar sem tekið er til­liti til ákvæða kvenna­sátt­mál­ans, evr­ópu­ráðs­samn­ings um aðgerðir gegn man­sali eða hins nýja Ist­an­búl-­samn­ings, sem hefur verið full­giltur hér á landi sem ég tel að kunni að hafa áhrif á nið­ur­stöðu máls kvenn­anna.“

Hún bendi á grein í Ist­an­búl-­samn­ingnum sem segir að:

„Samn­ings­að­ilar skulu gera nauð­syn­legar ráð­staf­an­ir, með laga­setn­ingu eða öðrum hætti, til að virða þá meg­in­reglu í sam­ræmi við skyldur þjóða­réttar að vísa hæl­is­leit­anda ekki aftur þangað sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu.

Samn­ings­að­ilar skulu gera nauð­syn­legar ráð­staf­an­ir, með laga­setn­ingu eða öðrum hætti, til að tryggja að konur sem verða fyrir ofbeldi og þarfn­ast verndar skuli, óháð stöðu þeirra eða búsetu, ekki undir neinum kring­um­stæðum vera sendar úr landi til nokk­urs lands þar sem líf þeirra kann að vera í hættu eða þar sem þær gætu átt á hættu að sæta pynt­ing­um, ómann­úð­legri eða van­virð­andi með­ferð eða refs­ing­u.“

Claudia segir að það virð­ist sem að stjórn­völd líti ekki svo á að ákvæði þessa samn­inga nái einnig til kvenna á flótta líkt og umbjóð­endum hennar og taki aldrei til­liti til þeirra við afgreiðslu umsóknar þessa hóps kvenna.

„Þetta er algjör mis­skiln­ing­ur. Mark­mið mitt er fyrst og fremst að bjarga þessum kon­um. Ekki síst er það mitt mark­mið að varpa ljósi á þetta vanda­mál og að sjá til þess að stjórn­völd breyti núver­andi fram­kvæmd og geri sér grein fyrir því að kven­rétt­indi eru mann­rétt­indi sem ná einnig til kvenna á flótta.“

Kynja­mis­rétti ger­ist einnig á meðal fólks á flótta

Af hverju er þessi kvenna­vink­ill mik­il­væg­ur?

„Það er grund­vall­ar­at­riði að stjórn­völd geri sér grein fyrir því sem aðgreinir konur á flótta frá körlum á flótta, en stað­reyndin er sú að kynja­mis­rétti ger­ist ekki bara hjá sínum sam­fé­lags­þegnum heldur einnig á meðal fólks á flótta.“

Vísar Claudia í yfir­lýs­ingu frá UN WOMEN, KFRI, Amnesty Íslands­deild­ar, SOL­ARIS, NO-­BORDERS og Sam­tök kvenna af erlendum upp­runa sem hún tekur heilsu­sam­lega undir en í henni kemur fram að kyn og kyn­gervi skipti miklu máli þegar fjallað eru málefni flótta­fólks. Það sé stað­reynd að staða kvenna á flótta sé sér­stak­lega við­kvæm þar sem þær standa frammi fyrir fjöl­þættri mis­mun­un, svo sem hætt­unni á kyn­bund­inni mis­munun og kyn­ferð­is­legu ofbeldi.

„Mál umbjóð­enda minna eru skýr dæmi um þetta,“ segir hún.

Hægt er að lesa við­talið við kon­urnar tvær hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár