Eurovision-hópurinn fékk undanþágu og fór fram fyrir í bólusetningu

RÚV fór fram á það við sótt­varn­ar­yf­ir­völd að hóp­ur­inn sem opin­bera fjöl­miðla­fyr­ir­tækið sendi til Hollands til að taka þátt í, og fjalla um, Eurovision, myndi fá bólu­setn­ingu áður en þau færu. Við því var orðið.

Rík­is­út­varpið (RÚV) óskaði eftir und­an­þágu fyrir Eurovision-hóp­inn sem fór til Rott­er­dam í Hollandi til að taka þátt í Eurovision-keppn­inni í ár til að fá bólu­setn­ingu gegn COVID-19. Sótt­varn­ar­yf­ir­völd veittu und­an­þág­una og hleypti hópnum fram fyrir röð í bólu­setn­ingu. Frá þessu er greint á mbl.is.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans er um allan hóp­inn sem fór út á vegum RÚV að ræða, ekki ein­ungis þau sem stíga á svið og flytja atriði Íslands, lagið 10 years með Daða og Gagna­magn­inu.

Í sam­tali við mbl.is segir Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir að sótt­varn­ar­yf­ir­völd hafi verið stíf á því að veita ekki und­an­þágur og að margir hafi fengið neitun. Eftir umræður hafi hins vegar ákveðið að veita Eurovision-hópnum und­an­þágu og bólu­setja hann. Það var gert fyrir tíu dögum síðan.

[adspot]Við Vísi segir Þórólfur að það hafi ekki verið neinir sér­stakir þættir sem gerðu það að verkum að Erovision-hóp­ur­inn fór fram fyrir röð­ina í bólu­setn­ingu. „Ég get skilið að mörgum finnst það kannski órétt­látt á meðan það er verið að neita öðrum hópum, en þetta var bara nið­ur­staðan.“

Smit kom samt sem áður upp í hópnum um helg­ina en það tekur að jafn­aði um tvær til þrjár vikur fyrir bólu­efni að virka að fullu.

[links]Felix Bergsson, fara­stjóri íslenska hóps­ins, greindi frá því í við­tali við Vísi í gær að hóp­ur­inn hefði verið bólu­settur með Jansen bólu­efni fyrir brott­för en þar kom ekki fram að um und­an­þágu var að ræða.

Á Íslandi er ekki mælt með bólu­setn­ingum 18 ára og yngri en þó kemur fram í upp­lýs­ingum yfir­valda að bólu­efni Pfizer-BioNtech megi nota hjá sextán ára og eldri.

20 pró­sent þjóð­ar­innar eru yngri en sextán ára og 24,5 pró­sent eru yngri en átján ára. 65 þús­und ein­stak­lingar hér á landi eru þegar orðnir full­bólu­settir eða 17,2 pró­sent allra þeirra sem hér búa.

Á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í febr­úar sagði Þórólfur að ólík­legt væri að kepp­endur Íslands á Olymp­íu­leik­unum í Tokýó í sumar yrðu settir í for­gang í bólu­setn­ingu, en Íþrótta­sam­band Íslands (ÍSÍ) hafði þá kallað eftir því að ólymp­íu­far­arnir yrðu bólu­settir sem fyrst.

Í byrjun maí ákvað Pfizer-bólu­efna­fram­leið­and­inn svo að gefa öllum kepp­endum á Ólymp­íu­leik­unum bólu­efni, en ekki liggur fyrir hvernig það verði útfært né hvort að kepp­endur í Ólymp­íu­hópi ÍSÍ verði bólu­settir sem hluti af þeirri áætlun. Einn íslenskur kepp­andi hefur þegar tryggt sér þátt­töku­rétt á leik­unum, sund­mað­ur­inn Anton Sveinn McKee.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár