Bókabúð verður til! – og um leið ný saga

Bóksali og bóka­safnari mætast í bóka­búðinni Skálda á Vestur­götu og úr verður skáld­skapur. „Ég er búinn að safna notuðum bókum síðustu tvö ár með það í huga að opna þessa búð,“ segir bóksalinn.

Einar Björn segir bækur hafa mikla þýðingu fyrir sér og vill helst vera umkringdur bókum.
Einar Björn segir bækur hafa mikla þýð­ingu fyrir sér og vill helst vera umkringdur bókum. Mynd: Golli

Skálda er óvenju skemmtilegt nafn fyrir bókabúð en þessa dagana undirbýr Einar Björn Magnússon opnun bókabúðar með því nafni – sem verður opnuð nú í haust á Vestur­götu 10a. Það er ekki úr vegi að kíkja á bóksalann og sjá bóka­búðina byrja að verða til, um leið og hann raðar fyrstu bókunum í hillur. Þá ber að garði bóka­safnara, Þorvald Örn Krist­mundsson, sem mætir óvænt og langar að leggja sitt af mörkum til að styrkja mikilvæga uppbyggingu bóka­veraldarinnar með því að gefa búðinni kassa af bókum sem hann hefur safnað.

„Mér finnst þetta þurfa að dafna,“ segir bóka­safnarinn Þorvaldur. „Að fleiri séu að safna bókum, fleiri með áhuga á þeim. Það þarf að efla vitundar­vakningu á bókum, gömlum bókum jafnt sem nýjum. Nú eru allir í símum og þessar bækur bara leikmunir í bíómyndum í augum ungs fólks. Heima hjá fólki er sjaldgæft að sjá …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár