52 greinst með COVID-19 innanlands á einni viku

Ellefu greindust með kór­ónu­veiruna inn­an­lands í gær, sunnu­dag. Samtals hafa því 52 inn­an­lands­smit greinst á einni viku.

124 eru í einangrun á Íslandi með COVID-19.
124 eru í ein­angrun á Íslandi með COVID-19. Mynd: EPA

Af þeim ell­efu sem greindust inn­an­lands með COVID-19 í gær voru sex í sótt­kví. Fimm greindust með veiruna á landa­mær­unum i gær.

Eftir gær­dag­inn eru 385 manns í sótt­kví og 124 í ein­angrun.

Fyrir viku hóf smitum inn­an­lands skyndi­lega að fjölga og meiri­hluti þeirra sem greinst hefur var þegar orð­inn full­bólu­settur við grein­ingu. Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði á upp­lýs­inga­fundi fyrir helgi að bólu­efni væru „klár­lega“ að veita minni vernd en hann hafði von­ast eftir.

Bólu­setn­ingar eru nær hvergi í heim­inum jafn útbreiddar og á Íslandi og ríf­lega 70 pró­sent full­orð­inna eldri en sextán ára eru full­bólu­settir.

Þórólfur sagði einnig fyrir helgi að hann ynni að minn­is­blaði til ráð­herra vegna fjölg­unar smita. Hann sagði m.a. koma til greina að allir fram­vísi nei­kvæðu PCR-prófi við kom­una til lands­ins, líka bólu­settir.

Bólu­settir hafa ekki þurft að fara í skimun á landa­mærum við kom­una til lands­ins frá síð­ustu mán­aða­mótum. Þórólfur hefur sagt ómögu­legt að skima alla sem koma, slíkur sé fjöld­inn.

Fréttin hefur verið upp­færð þar sem almanna­varnir sendu síð­degis í gær leið­rétt­ingu á tölum um smitin sem birtar voru um morg­un­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár