Opnum fundi fjárlaganefndar Alþingis og Bankasýslu ríkisins, sem fara átti fram í fyrramálið, mánudaginn 25. apríl kl. 10, hefur verið frestað og er nú á dagskrá á miðvikudagsmorgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá nefndasviði Alþingis. Þar segir að ný fréttatilkynning verði send út þegar nær dregur, en ekkert er tekið fram um ástæður frestunar fundarins.
Tildrög fundarins eru sala á 22,5% hlut í Íslandsbanka sem fram fór 22. mars síðastliðinn, en framkvæmdin hefur verið harðlega gagnrýnd síðan listi yfir kaupendur var birtur 30. mars. Í kjölfarið ákvað ríkisstjórnin að það rétta í stöðunni væri að leggja niður Bankasýslu ríkisins, en á fundinum á morgun átti Bankasýslan að gera grein fyrir skýrslu sinni um söluferlið.
[adspot]Í færslu á Twitter gagnrýnir Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, frátöfina og sakar Bankasýsluna um fyrirslátt og að sóa dýrmætum tíma þingsins. Nægur tími hafi verið til að vinna skýrsluna.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir