Biðla til starfsmanna um að taka leyfi ef kostur er

Starfs­fólk Icelandair spurði mikið um upp­sagnir á raf­rænum starfs­manna­fundi sem fram fór á innra neti fyr­ir­tæk­is­ins kl. 13 í dag. Ekki var þó til­kynnt um neinar slíkar, en fyr­ir­tækið hefur beðið fólk um að taka launa­laust leyfi, hafi það tök á.

Engin sér­stök tíð­indi, umfram allt það sem fram hefur komið í dag, voru boðuð á starfs­manna­fundi hjá Icelandair sem fór fram kl. 13 í dag í gegnum fjar­funda­búnað fyr­ir­tæk­is­ins.

Í morgun biðl­aði flug­fé­lagið til starfs­manna sinna um að taka sér launa­laust leyfi næstu mán­uði, hefðu þeir tök á, en einnig var fólk spurt hvort það gæti hugsað sér að lækka starfs­hlut­fall sitt eða taka fæð­ing­ar­or­lof. Fólk var beðið um að láta yfir­menn sína vita, gæti það hugsað sér að leggj­ast á árarnar með þessum hætti, fyrir hádegi á morgun, föstu­dag.

Spurn­ingum starfs­manna rigndi yfir stjórn­endur félags­ins á fund­inum og sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans var tölu­vert spurt um upp­sagnir, sem Bogi Nils Bogason for­stjóri hefur sagt óhjá­kvæmi­legt að ráð­ast þurfi í. Ekkert var þó gefið upp um slíkar aðgerðir á fund­inum, en ljóst er að starfs­fólk er hugsi yfir sinni stöðu, sem eðli­legt er.

Mark­aðsvirði flug­fé­lags­ins hefur hrapað um hátt í 20% það sem af er degi og ekki farið lægra frá því í jan­úar árið 2011. Allra leiða er nú leitað til þess að lækka kostnað og bregð­ast við tekju­miss­inum sem öruggt er að flug­fé­lagið verði fyrir við þær for­dæma­lausu aðstæður sem nú eru uppi í heim­inum öllum, ekki síst eftir að ferða­bann var ein­hliða sett á af hálfu stjórn­valda í Banda­ríkj­unum.

[links]

Hafa ekki óskað eftir hjálp frá stjórnvöldum

Bogi Nils fund­aði með rík­is­stjórn­inni í stjórn­ar­ráð­inu í hádeg­inu. Hann ræddi við fjöl­miðla eftir þann fund og sagði við mbl.is að ekki hefði verið óskað eftir því að stjórn­völd réttu fyr­ir­tæk­inu sér­staka hjálp­ar­hönd að svo stöddu. Þá er haft eftir for­stjór­anum á Vísi að ekki hafi verið rætt að afskrá félagið tíma­bundið af hluta­bréfa­mark­aði.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra sagði í Bítinu á Bylgj­unni í morgun að til greina kæmi að veita Icelandair hjálp­ar­hönd á þessum erf­iðum tímum, upp að því marki sem raun­hæft væri. Ráðherra sagði ótíma­bært að úttala sig um það hvernig slík hjálp gæti verið veitt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár