Einhliða ferðabann Trumps „gríðarlegt reiðarslag“ fyrir Ísland

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra segir að hann telji ferða­bann Banda­ríkj­anna „gríð­ar­legt reið­ar­slag“ og ljóst sé að efna­hag­legu áhrifin verði mikil. Viðbrögð til að hefta útbreiðslu COVID-19 verði þó að vera í for­gangi.

Fjármálaráðherra var fremur myrkur í máli þegar hann fór yfir stöðuna sem upp er komin í útvarpsviðtali á Bylgjunni í morgun.
Fjár­mála­ráð­herra var fremur myrkur í máli þegar hann fór yfir stöð­una sem upp er komin í útvarps­við­tali á Bylgj­unni í morgun. Mynd: Bára Huld Beck

„Þetta er mikið reið­ar­slag og það dregur líka fram í mínum huga mikla veik­leika í alþjóð­legu sam­starfi að svona hlutir geti gerst með ein­hliða ákvörð­unum án fyr­ir­vara,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra í Bítínu á Bylgj­unni á morgun, þar sem ferða­bann Banda­ríkja­stjórnar var til umræðu.

Bjarni sagði að þrátt fyrir að efna­hags­legar afleið­ingar ferða­banns­ins gætu orðið miklar, mætti ekki gleym­ast að ógnin væri önnur en ein­ungis efna­hags­leg. Útbreiðsla kór­ónu­veirunnar og við­brögð við henni þyrftu að vera í fyrsta sæti hjá þjóð­inni.

„Við megum ekki gleyma því að vírus­inn og afleið­ingar hans verða að vera í for­grunni hjá okkur, að hefta útbreiðsl­una, að hlífa þeim sem eru í veikri stöðu með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, að lág­marka álag á heil­brigð­is­kerfið, halda áfram að standa saman um ábyrga skyn­sam­lega hegðun, þetta er í fyrsta sæti hjá okkur til að hlífa hrein­lega lífum hérna á Íslandi,“ sagði fjár­mála­ráð­herra.

„Síðan er það hin ógnin, þessi efna­hags­lega, sem kemur núna skyndi­lega í fangið á okkur. Ofan í það sem við áður höfðum áhyggjur af. Ég get ekki lýst þessu öðru­vísi en sem gríð­ar­legu reið­arslagi fyrir þjóð sem byggir afkomu sína í sívax­andi mæli á komu ferða­manna til lands­ins og alveg ljóst að áhrifin sem við stöndum frammi fyrir eru langt umfram það sem við gátum ímyndað okkur fyrir tveimur vikum síðan, tíu dögum, jafn­vel á mánu­dag­inn,“ sagði Bjarni og bætti við að gott væri að stjórn­kerfið hefði þegar verið virkjað til þess að bregð­ast við.

Sagði að stutt yrði við Icelandair

Bjarni sagði að fyr­ir­sjá­an­legt væri að mörg störf myndu tap­ast og ljóst væri að gríð­ar­leg áföll væru framundan í ferða­þjón­ust­unni, en ríkið ætl­aði að reyna að milda það högg. Hann var spurður sér­tækt hvort til greina kæmi að hjálpa Icelandair fjár­hags­lega og sagði Bjarni að allt yrði gert sem „raun­hæft“ væri til að hjálpa flug­fé­lag­inu á þessum erf­iðu tímum. Þó væri ekki tíma­bært að ræða með nákvæm­lega hvaða hætti það mögu­lega yrði.

[links]

„Við erum komin í sam­tal við fjár­mála­kerfið vegna þess að það mun þurfa mikla lausa­fjár­fyr­ir­greiðslu til fyr­ir­tækja sem lenda í tíma­bundnum vanda. Það sem við erum að horfa til er að fleyta þeim í gegnum erf­iða tím­ann svo lág­marka megi áhrif nið­ur­sveifl­unnar og þá erum við auð­vitað að tala um að bjarga sem flestum störfum og valda sem minnstri röskun hjá heim­il­unum, þó við verðum að horfast í augu við að það er ekki hægt að fyr­ir­byggja slíkt, það munu verða gríð­ar­leg áföll í ferða­þjón­ust­unni með fækkun starfa,“ sagði fjár­mála­ráð­herra almennt um aðgerðir stjórn­valda.

„Á hinum end­anum erum við þá að bregð­ast við því með því að styrkja stuðn­ings­kerfin okkar og smíða leiðir til þess að þeir sem lenda í slíkum áföllum fái stuðn­ing hjá okkur hinum, vegna þess að við ætlum að ná okkur aftur upp úr þessu,“ bætti hann við.

Fjár­mála­ráð­herra sagði að ríkið hefði senni­lega aldrei verið í sterk­ari stöðu til þess að taka áfall í fangið. Ísland hefði til þess get­una vegna góðrar skulda­stöðu rík­is­sjóðs.

Rök Bandaríkjastjórnar „ekki boðleg“

Bjarni skaut föstum skotum að Banda­ríkja­mönnum og sagð­ist hafa snöggreiðst er hann heyrði af ferða­bann­inu. Hann sagði reið­ar­slag að svona afdrifa­rík ákvörðun væri tekin án sam­ráðs og gaf lítið fyrir rök Banda­ríkja­for­seta um að Evr­ópu­ríkin væru ekki að taka nægi­lega fast á útbreiðslu veirunnar.

„Það er ekki boð­leg nálgun að segja að stjórn­völd hafi verið kæru­laus í öðrum ríkjum. Veiran hefur komið upp í Banda­ríkj­unum, veiran varð ekki til í Evrópu,“ sagði fjár­mála­ráð­herra og bætti við þessar aðgerðir Banda­ríkja­stjórnar sýndu að þegar krísur steðj­uðu að hugs­aði hvert ríki fyrst og fremst um sína eigin hags­muni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár