Sanna lækkar laun sín til styrktar Maístjörnunni

Sós­í­alistar stofna sér­stakan styrkt­ar­sjóð sem kall­ast Maí­stjarnan. Fram­kvæmda­stjórn flokks­ins hefur ákveðið að setja fram­lag Reykja­vík­ur­borgar til flokks­ins í sjóð­inn. Sanna Magda­lena ætlar að styrkja sjóð­inn um 100 þús­und krónur á mán­uði.

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi sós­í­alista hefur ákveðið að styrkja Maí­stjörn­una um 100 þús­und krónur mán­að­ar­lega. Í til­kynn­ing­unni frá Sós­í­alista­fé­lagi Íslands segir að með því lækki Sanna í raun laun sín sem borg­ar­full­trúi úr 908 þús­und krónur á mán­uði í um 750 þús­und krónur fyrir skatt. Það eru 2,5 föld lág­marks­laun.

„Mér finnst að við eigum að setja mörk á hæstu laun í sam­fé­lag­inu, hversu mikið hærri þau geti verið en lág­marks­laun,“ segir Sanna í til­kynn­ing­unni. „Mér finnst þre­föld lág­marks­laun algjört hámark, til dæmis fyrir borg­ar­stjóra, og setti launin mín því í þrep þar fyrir neðan.“

Hópar hinna verr settu geta sótt um stuðning

Maí­stjarnan er sér­stakur sjóður til styrk­ingar hags­muna­bar­áttu verr settra hópa og mun fram­kvæmda­stjórn Sós­í­alista­flokks­ins fara með rekstur sjóðs­ins og úthlut­anir úr honum. Fram­kvæmda­stjórnin hefur ákveðið að setja fram­lag Reykja­vík­ur­borgar til flokks­ins, um 900 þús­und krónur í Maí­stjörn­una. Samkvæmt til­kynn­ing­unni má reikna með að á næsta ári verði fram­lagið tvö­falt hærra og á kjör­tíma­bil­inu renni um sjö millj­ónir króna úr borg­ar­sjóði til Maí­stjörn­unnar, í gegnum Sós­í­alista­flokk­inn. Framlag Sönnu til Maí­stjörn­unnar á kjör­tíma­bil­inu er metið á yfir fjórum millj­ónum króna.

Laufey Ólafs­dóttir gjald­keri fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins segir að hug­myndin sé að fólk sem til­heyrir hópum hinna verr settu í sam­fé­lag­inu geti sótt stuðn­ing til að greiða kostnað við upp­bygg­ingu bar­áttu­hópa, félaga eða sam­taka. „Maí­stjarnan mun veita skil­yrta styrki til að greiða útlagðan kostnað slíkra félaga, en ekki laun eða þókn­anir til stjórnar eða félags­manna. Það er alla vega ramm­inn til að byrja með. Verklag mun þró­ast í sam­starfi við þá hópa sem við vinnum með.“ segir Laufey.

Maístjarnan borgaði fyrir fundinn 1. desember

Fyrsta verk­efni Maí­stjörn­unnar var að gang­ast í ábyrgð fyrir allan kostn­aði vegna úti­fund­ar­ins á Aust­ur­velli 1. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Heild­ar­kostn­aður var um 140 þús­und krónur, Skilta­karl­arnir söfn­uðu í fötur um 106 þús­und krónur upp í kostn­að­inn á fund­inum og Maí­stjarnan mun borga mis­mun­inn, en til fund­ar­ins var boðað af þremur konum, Arndísi Jón­as­dóttur, Júlíu Sveins­dóttur og Alexöndru Krist­jönu Ægis­dóttur, sem ofbauð fram­koma þing­manna á Klaust­ur­barnum.

Maí­stjarnan er fjár­mögnuð með styrkt­ar­fram­lagi Reykja­vík­ur­borgar til Sós­í­alista­flokks Íslands og fram­lögum og gjöfum ein­stak­linga. Í til­kynn­ing­unni segir að reynslan eigi eftir að leiða í ljós hvers kyns hópa, félög og sam­tök Maí­stjarnan styrkir.

Sanna Magda­lena hvetur að lokum alla sós­í­alista sem geta að leggja fé til Maí­stjörn­unnar. „Mik­il­væg­ustu skrefin í átt að rétt­látu sam­fé­lagi er að þau sem mest líða undan órétt­læti kap­ít­al­ism­ans geti skipu­lagt sig, myndað sam­stöðu sín á milli og nái að byggja upp bar­áttu­tæki til að berj­ast fyrir hags­munum sínum. Það eru mik­il­væg­ustu stjórn­málin, lífs­bar­átta þeirra sem kap­ít­al­ism­inn er að drepa.“ segir í til­kynn­ing­unni að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár