Víðir: Verum heima með fjölskyldunni

„Þetta er auð­vitað hund­fúlt en samt að ein­hverju leyti það sem við gátum búist við,“ sagði Víðir Reyn­is­son á blaða­manna­fundi dags­ins. Þar með orð­aði hann hugs­anir okkar flestra: Frelsið var ynd­is­legt en nú þurfum við að stíga skref aftur.

Víðir: Handþvottur og sprittun gildir núna sem aldrei fyrr.
Víðir: Hand­þvottur og sprittun gildir núna sem aldrei fyrr. Mynd: Lögreglan

Góðan og bless­aðan dag­inn.

Þannig hóf Víðir Reyn­is­son, yfir­lög­reglu­þjónn almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra, ávarp sitt á blaða­manna­fundi í Safna­hús­inu í dag. Fund­ur­inn var hald­inn til að til­kynna að nú hefði verið stigið skref til baka í aðgerðum stjórn­valda – aðeins 100 mega koma saman í stað 500 eins og verið hefur síð­ustu vikur. Tveggja metra reglan er orðin að sann­kall­aðri reglu en ekki til­mælum og ef henni verður ekki við­komið skal fólk bera and­lits­grímur. Það er nýtt. Alveg nýtt.

Víðir hefur ítrekað ávarpað okkur með þessum upp­hafs­orðum síð­ustu mán­uði. Það gerði hann á öllum upp­lýs­inga­fundum vetr­ar­ins og fram á sumar. Með sínu ákveðna en hlý­lega fasi var það jú hann sem sagði okkur að ferð­ast inn­an­húss um pásk­ana og var sá sem slag­orðið „Ég hlýði Víði“ sner­ist um.

Nú biður Víðir okkur aftur að hlýða sér. Eftir að hafa verið í fríi – vissu­lega verð­skuld­uðu – var hann mættur á ný til að stappa í okkur stál­inu. Biðja okkur að standa saman.

[adspot]

„Ein af stóru ástæð­unum fyrir því að þetta gekk vel hjá okkur í vetur var að við gripum til aðgerða, við gripum til alvar­legra aðgerða og við gripum til þeirra snemma,“ sagði Víðir. „Þess vegna þurftum við ekki að fara í lok­anir og harka­legar aðgerðir eins og mörg önnur lönd þurftu síðar.“

[links]Hann sagði að enn værum við ekki komin á þann stað að neyð­ar­á­stand ríkti „og með sam­eig­in­legum aðgerðum þá ætlum við að koma í veg fyrir að við lendum þar,“ sagði hann með áherslu.

Og svo sagði hann það sem við öll sem hlust­uðum á heil­brigð­is­ráð­herra boða hertar aðgerðir vorum að hugsa: „Þetta er auð­vitað hund­fúlt en samt að ein­hverju leyti það sem við gátum búist við.“

Að aðeins hund­rað manns megi koma saman í stað 500 síð­ustu vikur er ekki eitt skref til baka heldur nær tveimur. Yfir­völdum er alvara.

„Nú er málið að standa saman og tækla þetta af ábyrgð. Látum þetta ekki hræða okkur eða pirra okkur en það eru samt sem áður eðli­leg við­brögð. Verum ekki reið – verum umburð­ar­lynd.“

Hann, líkt og allir sem voru á fund­inum, sagði að nú giltu „sem aldrei fyrr“ hinar ein­stak­lings­bundnu smit­varnir. „Ef þú ert með ein­kenni – vertu heima, jafn­vel þó að þau séu smá­vægi­leg. Láttu taka hjá þér sýni.“

Svo kom að því sem ekki má:

„Ekki heils­ast með handa­bandi. Ekki faðm­ast. Ekki vera að fara í hópa með fólki sem þú þekkir ekki ef þú ert í áhættu­hópi. [...] Hand­þvottur og sprittun gildir núna sem aldrei fyrr.“

Og með ákveðni bætti hann við: „Ef þú færð boð í skimun­ina sem er í gangi: Mættu!“

Hinar hertu aðgerðir taka gildi á hádegi á morgun, föstu­dag. Daginn fyrir þá helgi sem und­an­farna ára­tugi hefur verið kölluð mesta ferða­helgi árs­ins. „Þetta er stuttur tími til und­ir­bún­ings en við kunnum þetta. Við vorum að gera þetta í maí, þurfum að rifja þetta upp og virkja aftur verk­lag og leið­bein­ingar.“

Víðir benti svo á að ekki stæði til að „loka öllu“ en í far­aldr­inum í vetur var allri þjón­ustu sem krafð­ist nándar hætt tíma­bundið. „Við ætlum að setja þetta í hendur rekstr­ar­að­ila, að vera ábyrgir og taka sjálf­stæðar ákvarð­anir. Viðmiðið er hund­rað manns á sama stað. Og það er mik­il­vægt að við lítum á þetta sem sótt­varna­ráð­stöfun og förum ekki að leita leiða í kringum þetta. Hættum að búa til enda­laus sótt­varna­hólf og slíkt.“

Svo var komið að loka­orðum Víðis sem voru alltaf full af vina­legum boð­skap á upp­lýs­inga­fundum vetr­ar­ins. Þannig var það einnig nú.

„Við höfum gert þetta. Við höfum getað þetta og við getum þetta núna. Við gerum þetta saman. Ég vil beina orðum mínum sér­stak­lega til unga fólks­ins sem hefur verið spennt mjög lengi að fara í úti­legu og skemmta sér með vinum og kunn­ingjum núna um helg­ina. Við verðum að láta þetta bíða. Við höfum margoft sagt það að sum­arið 2020 er hið skrítn­asta sumar. Búum til öðru­vísi minn­ingar, verum heima með fjöl­skyld­unni, látum lífið halda áfram og verum góð hvert við annað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár