Einungis 100 mega koma saman og tveggja metra fjarlægð verður skylda

Frá og með hádegi á morgun mega ein­ungis 100 manns koma saman á sama stað. Tveggja metra nánd­ar­mörk milli ótengdra ein­stak­linga verða nú skylda.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Við erum komin á þann stað að það þarf að grípa til mjög afger­andi aðgerða,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra á blaða­manna­fundi í Safna­hús­inu við Hverf­is­götu í dag, þar sem ráð­herrar kynntu mjög hertar sótt­varna­ráð­staf­anir í sam­fé­lag­inu, í sam­ræmi við til­lögur sótt­varna­læknis. Þær verða í gildi næstu tvær vikur, til 13. ágúst.[links]

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra greindir frá því helsta að sam­komu­bann mun frá og með hádegi á morgun, 31. júlí, mið­ast við 100 manns. Börn sem fædd eru 2005 eða síðar verða und­an­skilin þessu eins og verið hefur.

Tveggja metra reglan verður nú skylda þar sem fólk kemur saman og í allri starf­semi og grímunotkun verður skylda á ákveðnum stöðum þar sem ekki er hægt að tryggja tveggja metra nánd­ar­mörk á milli ótengdra ein­stak­linga. Þetta á til dæmis við í almenn­ings­sam­göngum, inn­an­lands­flug og far­þega­ferjur en einnig ýmsa aðra þjón­ustu.

Svandís sagði að í allri starf­semi þyrfti að tryggja að ekki væru fleiri en 100 manns í sama rými og að í minni rýmum þyrfti að tryggja að tveggja metra fjar­lægð yrði haldið á milli ein­stak­linga. Þetta á við á öllum vinnu­stöðum.

„Á meðan að við erum að ná utan um stöð­una til þess að tryggja líf og heilsu þjóð­ar­innar þurfum við að stíga þetta skref. Allar þær ráð­staf­anir sem hér eru gerðar inn­an­lands eru í sam­ræmi við það sem við þekkjum. Við höfum gert þetta áður, við gerðum þetta vel og við getum gert þetta aftur vel,“ sagði Svandís.

[adspot]

Einnig verða aðgerðir á landa­mærum efldar, en tvö­föld sýna­taka verður útvíkkuð til allra sem hingað koma frá áhættu­svæðum og ætla að dvelja lengur en 10 daga.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra greindi frá því á fund­inum að ekki hefði verið ákveðið að fara aftur á neyð­ar­stig almanna­varna, en hún mun funda með rík­is­lög­reglu­stjóra og almanna­vörnum um stöðu mála síðar í dag.

Tillögurnar má lesa hér á neðan eins og þær voru birtar á vef stjórnarráðsins:

Um aðgerðir inn­an­lands frá 31. júlí:

Tak­mörkun á fjölda sem kemur saman mið­ast við 100 ein­stak­linga. Börn fædd 2005 eða síðar eru und­an­skilin.

Hvar sem fólk kemur saman og í allri starf­semi verði við­höfð sú regla að hafa a.m.k. 2 metra á milli ein­stak­linga.

Þar sem ekki er hægt að tryggja 2 metra fjar­lægð milli ótengdra ein­stak­linga er kraf­ist notk­unar and­lits­grímu sem hylur nef og munn. Þetta á t.d. við um almenn­ings­sam­göngur, þ.m.t. inn­an­lands­flug og far­þega­ferjur, og starf­semi s.s. hár­greiðslu­stofur og nudd­stofur. And­lits­grímur sem not­aðar eru utan heil­brigð­is­þjón­ustu ættu að upp­fylla kröfur sem settar eru fram í leið­bein­ingum sótt­varna­læknis.

Vinnu­staðir, opin­berar bygg­ingar, versl­anir og þjón­ustu­fyr­ir­tæki sem eru opin almenn­ingi skipu­leggi starf­semi sína í sam­ræmi við ofan­greint og tryggi að ekki séu fleiri en 100 ein­stak­lingar í sama rými og að í minni rýmum séu ekki fleiri en svo að hægt sé að tryggja 2 metra fjar­lægð milli ein­stak­linga.

Versl­anir, opin­berar bygg­ingar og þjón­ustu­fyr­ir­tæki sem eru opin almenn­ingi tryggi aðgang að hand­sótt­hreinsi fyrir almenn­ing og starfs­menn við inn­ganga og í grennd við yfir­borð sem margir snerta s.s. snert­iskjái og afgreiðslu­kassa, sinni vel þrifum og sótt­hreinsun yfir­borða eins oft og unnt er og minni almenn­ing og starfs­menn á ein­stak­lings­bundnar sótt­varnir með merk­ingum og skiltum.

Sund­laugar og veit­inga­staðir tryggi að gestir geti haft 2 metra bil á milli sín í öllum rýmum með fjölda­tak­mörkun í sam­ræmi við stærð hvers rýmis.

Sótt­varna­læknir leggur til að starf­semi sem í eðli sínu felur í sér að gestir noti sam­eig­in­legan búnað s.s. íþrótta­starf, lík­ams­rækt­ar­stöðvar, spila­kassar og spila­salir geri hlé á starf­semi eða sótt­hreinsi slíkan búnað milli not­enda.

Sótt­varna­læknir leggur til að söfn, skemmti­staðir og aðrir opin­berir staðir geri hlé á starf­semi sé ekki hægt að tryggja að farið sé eftir fjölda­tak­mörkun eða að bil milli ótengdra aðila sé yfir 2 metrum.

Opn­un­ar­tími skemmti- og vín­veit­inga­staða verður áfram til kl. 23:00.

Aðgerðir efldar á landa­mær­unum frá 31. júlí:

Sótt­varna­læknir mælir með að tvö­föld sýna­taka, við komu og á degi 4-6 ef fyrra sýnið er nei­kvætt, verði útvíkkuð til allra sem hingað koma frá áhættu­svæðum og dvelja hér 10 daga eða lengur með ráð­stöf­unum í sam­ræmi við það sem nefnt hefur verið heim­komusmit­gát þar til nei­kvæð nið­ur­staða fæst úr seinni sýna­töku. Ef þessi ráð­stöfun ber ekki árangur og inn­lend smit koma upp tengd komu­far­þegum þrátt fyrir beit­ingu ofan­greindra ráð­staf­ana þarf hugs­an­lega að efla aðgerðir á landa­mærum enn frekar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár