Frumvarp verður lagt fram og fyrirkomulag vigtunar á fiski breytt

Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neytið mun leggja fram frum­varp þar sem við­ur­lög verða end­ur­skoðuð. Það telur ekk­ert hald­bært liggja fyrir um að árangur Fiski­stofu sé síðri eftir flutn­ing til Akur­eyrar og sá flutn­ingur verður ekki end­ur­skoð­aður.

Kristján Þór Júlíusson tók við sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fyrir helgi.
Kristján Þór Júl­í­us­son tók við sem sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra fyrir helgi. Mynd: Hringbraut

Kristján Þór Júl­í­us­son, nýr sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, ætlar að leggja fram frum­varp á vor­þingi um breyt­ingar á lögum um umgengni um nytja­stofna sjávar þar sem m.a. verða lagðar til breyt­ingar á fyr­ir­komu­lagi vigt­unar. Þetta verður gert í kjöl­far nýlegrar umfjöll­unar Kveiks og frétta­stofu RÚV um brott­kast sem á sér stað í íslenskum sjáv­ar­út­veg og um að vigtun afla sé ekki sem skyldi. Þetta kemur fram í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

[links]Ekki verður greint frá því um hvaða breyt­ingar sé að ræða fyrr en að frum­varpið verður lagt fram að öðru leyti en að við­ur­lög vegna brott­kasts og vigt­un­ar­mála verða hluti af end­ur­skoðun lag­anna.

Þá kemur fram í svari sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráðu­neyt­is­ins að til greina komi að taka starf­semi Fiski­stofu til sér­stakrar skoð­unar á næsta ári en að engin áform séu um að end­ur­skoða flutn­ing Fiski­stofu frá Hafn­ar­firði til Akur­eyrar.

Styrkja þarf úrræði og viðurlög

Fjallað var um brott­kast og alvar­lega ann­marka á vigt­un­ar­málum á afla í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik á RÚV 21. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Samkvæmt umfjöll­un­inni á sér stað svindl í formi fram­hjá­landana á afla og brott­kast tíðkast á íslenskum skipum, þrátt fyrir að það sé ólög­legt. Eyþór Björns­son, for­stjóri Fiski­stofu, sagði í þætt­inum að stofn­unin hefði ekki tök á að sinna þessum málum.

[adspot]Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS), sendi frá sér yfir­lýs­ingu vegna þátt­ar­ins þar sem kom m.a. fram að áhyggjur af brott­kasti og vigt­un­ar­mála væru „að mestu óþarfar“.

Daginn eftir sýndi frétta­stofa RÚV mynd­band af brott­kasti á fiski, sem átti sér stað á Kleif­ar­berg­inu, skipi í eigu útgerð­ar­fé­lags­ins Brims, í fyrra.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, þáver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, sagði í Silfrinu 27. nóv­em­ber að útgerðin beri mesta ábyrgð á brott­kasti og því að vigtun afla væri ekki sem skyldi. Hún sagði enn fremur að styrkja þyrfti úrræði og við­ur­lög vegna þessa.

Hin umdeildi flutningur Fiskistofu

Um mitt ár 2014 til­kynnti þáver­andi ráð­herra mála­flokks­ins, Sigurður Ingi Jóhanns­son, skyndi­lega að flytja ætti Fiski­stofu frá Hafn­ar­firði til Akur­eyrar. Flutn­ingnum átti að ljúka í árs­lok 2016.

Ákvörð­unin var harð­lega gagn­rýnd, ekki síst af starfs­mönnum stofn­un­ar­inn­ar. Í til­kynn­ingu sem starfs­fólkið sendi frá sér í lok sept­em­ber 2014 sagði að flutn­ing­ur­inn væri ólög­legur og engin fag­leg sjón­ar­mið byggju að baki. Þá hefði eng­inn starfs­maður Fiski­stofu lýst yfir vilja til þess að flytja með stofn­un­inni til Akur­eyr­ar, að for­stjór­anum frá­töld­um. Mál­flutn­ingur stjórn­mála­manna, þar sem lands­byggð og höf­uð­borg­ar­svæð­inu væri att sam­an, hafi verið óboð­legur og óþol­andi þegar um póli­tíska hreppa­flutn­inga væri að ræða, þar sem flytja átti sér­fræði­menntað fólk, nauð­ugt vilj­ugt, milli lands­hluta án mál­efna­legra skýr­inga.

Í athuga­semdum starfs­manna Fiski­stofu til umboðs­manns Alþingis vegna flutn­ingar stofn­un­ar­inn­ar, sem birtar voru í jan­úar 2015, sagði að ákvörð­un ­Sig­urðar Inga um flutn­ing Fiski­stofu hefði ekki laga­stoð og væri því ólög­mæt.

Sig­urður Ingi ákvað í maí 2015 að falla frá því að starfs­menn Fiski­stofu, að und­an­skildum Fiski­stofu­stjóra, þyrftu að flytja til Akur­eyr­ar. Þess í stað myndi flutn­ing­ur­inn eiga sér stað í gegnum starfs­manna­veltu og búist var við því að flutn­ing­ur­inn, sem átti að taka tvö og hálft ár, muni taka allt að 20 ár.

Segir árangur Fiskistofu ekkert síðri eftir flutning

Fiski­stofu­stjóri sagði í apríl 2015 að merki væru um að stofn­unin væri að lið­ast í sundur vegna þess óvissu­á­stands sem skap­ast hefði um fram­tíð hennar í kjöl­far ákvörð­unar Sigurðar Inga.

Þor­gerður Katrín sagði í Silfrinu 27. nóv­em­ber að Fiski­stofu hefði verið „splundrað“ þegar hún var flutt til Akur­eyrar. Afleið­ingin væri m.a. sú að stofn­unin hefði ekki tök á því að sinna málum tengdum brott­kasti og vigt­un­ar­málum. „Það var póli­tísk ákvörðun Sigurðar Inga að fara með stofn­un­ina, sundra henni og setja í þetta ein­hverjar þrjú til fjögur hund­ruð millj­ónir sem ég hefði frekar viljað sjá í upp­bygg­ingu á eft­ir­lits­kerf­inu innan sjáv­ar­út­vegs­kerf­is­ins.“

Kjarninn spurði sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neytið hvort flutn­ingur Fiski­stofu til Akur­eyrar yrði end­ur­skoð­aður. Í svari þess kemur fram að engin áform séu um slíkt. „Ekkert hald­bært liggur fyrir um það að árangur Fiski­stofu hafi verið eitt­hvað síðri eftir flutn­ing­inn til Akur­eyrar þó vissu­lega hafi mikil orka farið í flutn­ing­inn sjálfan og það sem honum við kom.“

Kjarninn spurði einnig hvort til greina kæmi að fram­kvæmd verði stjórn­sýslu­út­tekt á Fiski­stofu í ljósi þeirra upp­lýs­inga sem nýverið komu fram, og við­ur­kenn­ingu Fiski­stofu­stjóra á því að stofn­unin geti ekki sinnt lög­bundnu hlut­verki sínu?

Í svari ráðu­neyt­is­ins kemur fram að starf­semi stofn­ana ráðu­neyt­is­ins sé að jöfnu til skoð­unar. „Á þessu ári var lögð áhersla á að fara vel yfir starf­semi Mat­væla­stofn­unar og til greina kemur að taka starf­semi Fiski­stofu til sér­stakrar skoð­unar á næsta ári.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár