„Stórlega ámælisverð“ stjórnsýsla í flutningi Fiskistofu

Ákvörðun Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, um flutn­ing Fiski­stofu hafði ekki laga­stoð og var því ólög­mæt. Áform um að leita heim­ildar þings­ins nú í vetur breytir engu þar um. Tal ráð­herr­ans um að ekki hafi verið ákveðið að flytja höf­uð­stöðvar Fiski­stofu til Akur­eyrar er einnig rangt og hann reynir að afvega­leiða eft­ir­lits­stofnun Alþingis með því.

Þetta kemur fram í athuga­semdum starfs­manna Fiski­stofu til umboðs­manns Alþingis vegna flutn­ings stofn­un­ar­innar. Þar eru gerðar miklar athuga­semdir við svör Sigurðar Inga til umboðs­manns fyrir jól vegna máls­ins. Ráðherra talar þar um áform um að flytja Fiski­stofu, en ekki ákvörðun. Þetta er rangt, og ámæl­is­vert, að mati starfs­manna Fiski­stofu. Starfs­menn­irnir vitna í hljóð­skrár af fundum með ráð­herr­anum sem og ummæli hans í fjöl­miðlum til að stuðn­ings þessu. „Ráðherra getur ekki bent á laga­heim­ildir fyrir ákvörðun sinni, sem eðli­legt er, þar sem þær eðli máls­ins sam­kvæmt finn­ast ekki.“

„Þótt vissu­lega mætti fagna því ef ráð­herra hefði enga ákvörðun tekið hér að lút­andi, er sú stjórn­sýsla sem fólst í ákvörðun ráð­herra og nú í svari hans stór­lega ámæl­is­verð. Ákvörð­unin hefur verið mjög skað­leg stofn­un­inni, við­skipta­vinum hennar, en ekki síst starfs­mönnum Fiski­stofu og fjöl­skyldum þeirra,“ segir í athuga­semd­unum.

Starfs­menn Fiski­stofu segja jafn­framt að frum­varp um breyt­ingar á Stjórn­ar­ráði Íslands, þar sem heim­ila á ráð­herrum að taka ákvarð­anir um stað­setn­ingu und­ir­stofn­ana, feli í sér ólög­mætt fram­sal lög­gjaf­ar­valds til fram­kvæmda­valds.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár