Hillary Clinton segir allt í nýrri bók

Hillary Clinton lýsir for­seta­kjör­inu í Banda­ríkj­unum í fyrra frá sínum bæj­ar­dyrum í nýrri bók.

Hillary Clinton hefur skrifað bók um upplifun sína af forsetakosningunum í fyrra.
Hillary Clinton hefur skrifað bók um upp­lifun sína af for­seta­kosn­ing­unum í fyrra. Mynd: EPA

Hillary Clinton hefur lofað að fella alla múra í nýrri bók hennar sem kemur út í haust. Bókina segir hún vera sína per­sónu­leg­ustu hingað til en hún mun fjalla um end­ur­minn­ingar Clinton úr for­setaslagnum við Donald Trump á síð­asta ári.

Áætlað er að bókin verði gefin út í sept­em­ber. Útgef­and­inn segir að í henni segi Clinton frá því hvernig það sé að bjóða sig fram gegn Donald Trump, hver hún telji að mis­tök sín hafi verið og hvernig hún hafi tek­ist á við þann raun­veru­leika sem blasti við eftir að hafa tapað fyrsta fram­boði konu til emb­ættis for­seta í Banda­ríkj­unum.

„Í for­tíð­inni, vegna ástæðna sem ég reyni að útskýra, hefur mér oft fund­ist ég þurfa að hegða mér var­lega á almanna­vett­vangi, eins og ég stæði á vír í háloft­unum án örygg­is­nets. Nú ætla ég að fella alla múra,“ segir Clinton í til­kynn­ingu um bók­ina sem mun heita What Happened.

„Bókin mun einnig gefa les­endum hug­mynd um hvernig það er að bjóða sig fram sem for­seta, sér­stak­lega ef maður er kona. Á end­anum snýst það um það hvernig þú stendur aftur upp eftir ósigur,“ segir Clinton.

Upp­haf­lega var til­kynnt að Clinton væri að skrifa stutta kafla um kosn­inga­bar­átt­una. Fljót­lega höfðu þessir kaflar vaxið í heila end­ur­minn­inga­bók.

„Hún fjallar um þær áskor­anir sem fylgja því að vera sterk kven­kyns fígúra í auga almenn­ings, gagn­rýni á rödd hennar, aldur og útlit, og þann tví­skinn­ung sem mætir konum í póli­tík,“ segir í til­kynn­ingu útgef­and­ans.

Fékk fleiri atkvæði

Hillary Clinton var fram­bjóð­andi Demókra­ta­flokks­ins í banda­rísku for­seta­kosn­ing­unum í fyrra. Hún var talin mun lík­legri sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna af nær öllum þar til á kosn­inga­nótt þegar talið var úr kjör­köss­unum. Þá fyrst kom í ljós að hún hafði tapað fyrir Donald Trump, fram­bjóð­anda Repúblikana­flokks­ins.

Í kosn­ing­unum fékk Hillary Clinton mun fleiri atkvæði en Donald Trump. Kosn­inga­kerfið í Banda­ríkj­unum er hins vegar byggt upp þannig að kjós­endur kjósa sér kjör­menn, sem síðan kjósa for­seta. Trump var þess vegna kjör­inn for­seti því hann hlaut á end­anum fleiri kjör­menn.

Clinton er fyrsta konan sem stóru valda­flokk­arnir í Banda­ríkj­unum velja sem fram­bjóð­anda sinn í for­seta­kosn­ingum. Á kosn­inga­nótt í nóv­em­ber í fyrra hafði verið boðið kosn­ingap­artý undir stóru gler­þaki, sem átti að vera tákn­rænt þegar hún myndi stíga fram og flytja ræðu sína sem nýkjör­inn for­seti Banda­ríkj­anna; Búin að brjóta hæsta og þykkasta gler­þakið í banda­rískum stjórn­málum.

Það varð hins vegar ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

femínismi

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár