Forsætisráðuneytið notaði rangar tölur um tekjujöfnuð

For­sæt­is­ráðu­neytið not­aði rangar tölur til að reikna út tekju­jöfnuð á Íslandi. Send var út frétt sem átti að byggja á tölum frá árinu 2014 en voru í raun frá 2013.

Sigurður Ingi Jóhannsson er forsætisráðherra Íslands.
Sigurður Ingi Jóhanns­son er for­sæt­is­ráð­herra Íslands. Mynd: Birgir Þór Harðarson

For­sæt­is­ráðu­neytið sendi frá sér frétt í dag sem byggði á röngum upp­lýs­ingum. Fréttin var um að tekju­jöfn­uður hafi aldrei verið meiri á Íslandi en árið 2014 og átti að byggja frá tölum þess árs. Raunin er að töl­urnar sem for­sæt­is­ráðu­neytið studd­ist við voru frá árinu 2013.

Í frétt for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins sagði að tekju­jöfn­uður hafi aldrei verið meiri á Íslandi en árið 2014, og það ár hafi ekk­ert Evr­ópu­ríki búið við jafn­mik­inn tekju­jöfnuð og Ísland. Fréttin byggði á tölum frá Eurostat, hag­stofu Evr­ópu­sam­bands­ins.

Eyjan greinir frá því að fréttin hafi verið byggð á röngum for­sendum, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Hag­stof­unni. Tölurnar sem Eurostat notar byggja á Evrópsku lífs­kjara­rann­sókn­inni og end­ur­spegla tekju­mæl­ingar árs­ins á undan, það er upp­lýs­ingar fyrir árið 2013.

„Sigurður Már Jónsson, upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar, sagði í sam­tali við Eyjuna að um mis­tök hafi verið að ræða. Rétt sé að upp­lýs­ing­arnar sem um ræði nái til tekna fyrir árið 2013 en ekki 2014. Til standi að senda út leið­rétt­ingu vegna þessa nú á næst­unni," segir í frétt Eyjunnar.

Uppfært klukkan 16:30: Fréttin var upp­færð eftir að ljóst var að frétt for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins var röng.

Upprunarlegu fréttina má sjá hér að neðan:

Tekju­jöfn­uður hefur aldrei verið meiri á Íslandi en árið 2014, og það ár bjó ekk­ert Evr­ópu­ríki við jafn­mik­inn tekju­jöfnuð og Ísland. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, sem byggir á nýjum tölum frá Eurostat, hag­stofu Evr­ópu­sam­bands­ins.

Samkvæmt Gini-stuðl­inum, sem er not­aður sem mæli­kvarði á tekju­dreif­ingu, fóru Íslend­ingar fram úr Norð­mönnum í tekju­jöfnun árið 2014, en árin á undan höfðu Norðmenn verið með lægstan Gini-stuðul og þar með með mestan tekju­jöfnuð. Stuð­ull­inn fyrir Ísland lækk­aði úr 24 árið 2013 í 22,7 árið 2014.

Samkvæmt skil­grein­ingu Eurostat eru þeir, sem eru með lægri ráð­stöf­un­ar­tekjur eftir opin­berar til­færslur en sem nemur 60 pró­sentum af mið­gildi ráð­stöf­un­ar­tekna, í hættu á að verða fátækt að bráð. Á Íslandi eru 7,2 pró­sent þjóð­ar­innar með ráð­stöf­un­ar­tekjur undir 60% af mið­gild­inu, en það er lægra hlut­fall en hjá öðrum Evr­ópu­ríkjum. Hlut­fallið mælist á bil­inu 11 til 15 pró­sent á hinum Norð­ur­lönd­unum en með­al­talið í Evr­ópu­sam­band­inu er 16,3%. Miðgildi tekna er svipað á Íslandi og í Danmörku, Svíþjóð og Finn­landi, en tekjur eru hærri í Noregi, segir í til­kynn­ingu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár