Íslenskir lífeyrissjóðir eiga um 33 prósent af fjármunum á Íslandi

Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir áttu 70 pró­sent allra mark­aðs­skulda­bréfa og víxla og 41 pró­sent skráðra hluta­bréfa hér­lendis á árinu 2016. Einungis um 22 pró­sent eigna þeirra voru erlendis. Starfs­hópur vill að þeir auki vægi erlendra eigna.

Íslendingar eiga lífeyrissjóðina, sem hafa það meginhlutverk að tryggja íbúum landsins áhyggjulaust ævikvöld. En þeir eru líka langstærsti leikandinn í íslensku viðskiptalífi. Og eiga stóran hluta allra eigna hérlendis.
Íslend­ingar eiga líf­eyr­is­sjóð­ina, sem hafa það meg­in­hlut­verk að tryggja íbúum lands­ins áhyggju­laust ævi­kvöld. En þeir eru líka langstærsti leik­and­inn í íslensku við­skipta­lífi. Og eiga stóran hluta allra eigna hér­lendis. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Íslenskir lífeyrissjóðir eiga um þriðjung af heildarfjármunum á Íslandi og spár gera ráð fyrir að eignarhlutur þeirra muni aukast á næstu árum. Er gert er ráð fyrir því að sjóðirnir skili 3,5 prósent raunávöxtun á ári mun hlutur þeirra í heildarfjármunaeign á Íslandi fara í 35 prósent árið 2030 og í tæp 40 prósent árið 2060.

Þeir hafa stækkað mjög hratt á fáum árum og og áttu árið 2016 70 prósent allra markaðsskuldabréfa og víxla á Íslandi ásamt því að eiga 41 prósent allra skráðra hlutabréfa í íslensku kauphöllinni. Starfshópur fjármála- og efnahagsráðuneytisins um erlendar fjárfestingar lífeyrissjóða, sem skipaður var 21. mars 2017 og skilaði áliti 18. apríl sama ár, telur að svigrúm sjóðanna til að bæta við sig innlendum markaðsverðbréfum sé mjög takmarkað nema markaðurinn stækki. Þetta kemur fram í skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um umsvif lífeyrissjóða í íslensku efnahagslífi sem skilað var til forsætisráðuneytisins 24. október síðastliðinn og hefur nú verið birt opinberlega.

Samtímis hefur skýrsla starfshóps sem skoðaði hlutverk lífeyrissjóða í uppbyggingu atvinnulífs á Íslandi líka birt. Í henni er lagt til að sjóðirnir auki vægi erlendra eigna til lengri tíma, verði skyldugir til að móta sér stefnu um stjórnarhætti sem eigenda í atvinnufyrirtækjum og verði skylt að birta að minnsta kosti árlega skýrslu með upplýsingum um samskipti við félög sem þeir fjárfesta í og hvernig þeir greiði atkvæði á hluthafafundum. Þá er því beint til stjórnvalda að skoða, í samráði við hagsmunaaðila, að breyta lögum þannig að einstaklingar fái auknar heimildir til að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði sínum til húsnæðissparnaðar og að sjóðsfélagar geti ráðstafað 3,5 prósent af 15,5 prósent lágmarksiðgjaldi í séreign eða húsnæðissparnað að eigin vali.

Sjóðirnir eiga að veita meiri upplýsingar

Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir áttu 3.837 millj­arða króna í lok nóv­em­ber síð­ast­lið­ins. Í nið­ur­stöðum starfs­hóps­ins segir að alþjóð­legur sam­an­burður sýni að íslenskir líf­eyr­is­sjóðir séu hlut­falls­lega stórir miðað við hag­kerfi lands­ins. Þeir eigi um þriðj­ung af heild­ar­fjár­munum á Íslandi og spár gera ráð fyrir því að eign­ar­hlutur sjóð­anna geti auk­ist á næstu árum.

Þar kemur einnig fram að eignir líf­eyr­is­sjóð­anna séu eins­leitar sem stafi af því að erlendar eignir séu of lítið hlut­fall þeirra. Um þessar mundir eru til að mynda aðeins rúm­lega 20 pró­sent eign­anna erlendis.

Starfs­hóp­ur­inn hefur áhyggjur af því að víð­tækt eign­ar­hald líf­eyr­is­sjóða inn­an­lands geti „haft áhrif á sam­keppni og þar af leið­andi á verð og þjón­ustu við neyt­endur. Þess vegna er áríð­andi að líf­eyr­is­sjóðir marki stefnu um það hvernig þeir beita sér sem hlut­hafar í fyr­ir­tækjum sem þeir eiga hlut í. Þar sem sjóð­irnir byggja á skyldu­að­ild er eðli­legt að gera ríkar kröfur til þeirra um upp­lýs­inga­skyldu gagn­vart sjóð­fé­lög­unum, eig­endum sjóð­anna.“

Sjóð­irnir gæti mik­illa hags­muna og séu því virkir hlut­hafar í fyr­ir­tækjum sem þeir fjár­festa í. „Sjóð­irnir eiga að leggja metnað í að inn­leiða leið­bein­ingar um stjórn­ar­hætti fyr­ir­tækja og stuðla að því að stjórn­ar­menn fyr­ir­tækja séu sjálf­stæðir í störfum sínum og hafi engin tengsl við til­tekna hlut­hafa umfram aðra.“

Miklar fjárfestingar innanlands geta þrýst upp eignaverði

Fjár­magns­höft voru við lýði á Íslandi frá lokum árs 2008 og fram á vor­mán­uði 2017. Þau gerðu það að verkum að íslenskir líf­eyr­is­sjóðir gátu ekki nýfjár­fest erlendis heldur ein­ungis end­ur­fjár­fest þær eignir sem voru erlendis þegar höft voru sett.

Í skýrslu Hag­fræði­stofn­unar um umsvif líf­eyr­is­sjóða í íslensku efna­hags­lífi segir að hlut­fall erlendra eigna líf­eyr­is­sjóða af heild­ar­eignum þeirra hafi verið um 30 pró­sent þegar höftin voru sett. Nú sé það aðeins rúm­lega 20 pró­sent. Ávöxtun hafi þó verið ágæt á Íslandi eftir hrun en sjón­ar­mið um áhættu­dreif­ingu mæli á móti því að íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eigi hætti tæp­lega 80 pró­sent af fé sínu á jafn litlum mark­aði og Ísland sé.

[adspot]Hag­fræði­stofnun skoð­aði fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóða í sjö öðrum löndum. Sú skoðun leiddi í ljós að hlut­deild erlendra fjár­fest­inga næst­minnst á Íslandi, þó að það sé lang­minnsta hag­kerfið.

Þá er það nið­ur­staða Hag­fræði­stofn­unar að miklar fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóða á inn­lendum mark­aði geti þrýst eigna­verði upp á við. „Af þeirri ástæðu gæti verið ráð­legt að halda fjár­fest­ingum hér á landi í hófi. Rök mæla ekki ein­ungis gegn því að sjóð­irnir setji stóran hluta af eignum sínum undir í einu landi - og því litlu - heldur getur líka verið óvar­legt að hætta stórum hluta eigna á sama stað og tekna er aflað. Þá eru í skýrsl­unni færð rök fyrir því að sér­lega áhættu­samt sé fyrir líf­eyr­is­sjóð­ina að leggja mikið undir á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði. Und­an­far­inn ald­ar­fjórð­ung hefur gengi íslenskra hluta­bréfa sveifl­ast meira en heims­vísi­tala hluta­bréfa í krónum talið.“

Það er því mat stofn­un­ar­innar að hlut­fall erlendra eigna líf­eyr­is­sjóða eigi á næstu 25 árum að hækka úr 22 pró­sent, líkt og þær eru nú, í 42 pró­sent.

Verða áfram fyrirferðamiklir á Íslandi

Hag­fræði­stofnun segir að senni­lega megi skýra stóran eign­ar­hlut líf­eyr­is­sjóða í íslenskum fyr­ir­tækjum að nokkru með fjár­magns­höft­unum. Ef það sé rétt muni hlutur sjóð­anna lík­ast til fara minnk­andi á kom­andi árum og um leið minnki sú ógn sem sam­keppni stafar af umsvifum þeirra.

Þetta þýði þó ekki að sömu eig­endur verði ekki áfram að ein­hverju leyti að fyr­ir­tækjum sem keppa á sama mark­aði. „Þó að margt mæli með því að sjóð­irnir snúi fjár­fest­ingum sínum af auknum þunga til útlanda verða þeir að öllum lík­indum áfram fyr­ir­ferð­ar­miklir á íslenskum fjár­magns­mark­aði. Það er í höndum stjórn­enda sjóð­anna að ákveða hvar þeir fjár­festa. Þeir kaupa ekki íslensk verð­bréf nema þeir trúi því að íslenskt efna­hags­líf og íslenskur fjár­magns­mark­aður ráði við fjár­fest­ing­arnar. Enginn er óskeik­ull, en í ljósi þessa verður að telja ólík­legt annað en að mark­aðir hér á landi ráði við fjár­fest­ingar sjóð­anna á kom­andi árum. Með öðrum orðum muni fjár­fest­ingar þeirra rúm­ast vel í hag­kerf­inu.Að vísu verður að setja þann fyr­ir­vara við þessa ályktun, að sam­kvæmt lögum má aðeins helm­ingur eigna sjóð­anna bera geng­is­á­hættu. Af þeim sökum er ekki úti­lokað að þeir festi meira fé á Íslandi en stjórn­endur þeirra telja ráð­legt. Erfitt er að sjá hald­góð rök fyrir slíkum hömlum á fjár­fest­ingum líf­eyr­is­sjóða.“

Þá fjallar Hag­fræði­stofnun um þær raddir sem hafi heyrst um að stór­felld eigna­kaup líf­eyr­is­sjóða erlendis geti veikt gengi krón­unnar. Nið­ur­staða stofn­un­ar­innar er sú að það geti hugs­an­lega gerst, en að þau áhrif yrðu senni­lega ekki mikil.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár