Stjórnandstöðuflokkarnir með meirihluta í þinginu

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn virð­ist í lyk­il­stöðu við myndun nýrrar rík­is­stjórnar, þar sem erfitt er að mynda nýja rík­is­stjórn án þátt­töku hans.

Þegar búið var að telja 155 þús­und atkvæði þá var Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stærstur flokka með um 25 pró­sent fylgi, en stjórn­ar­flokk­arnir - Viðreisn og Björt fram­tíð auk Sjálf­stæð­is­flokks­ins - höfðu misst 12 þing­menn.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem heldur sínum átta þing­mönnum, gæti orðið í lyk­il­stöðu við myndun nýrrar rík­is­stjórnar, til hægri eða vinstri, en hann er með átta þing­menn.

Loka­tölur eru byrj­aðar að ber­ast, þegar þetta var skrifað, en voru ekki komnar úr öllum kjör­dæmum.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn missir 5 þing­menn frá kosn­ing­unum í fyrra, Viðreisn þrjá og Björt fram­tíð þurrkast nær alveg út og missir alla sína fjóra þing­menn og er langt frá því að ná 5 pró­sent lág­mark­inu.

Flokkur fólks­ins, með Ingu Sæland í broddi fylk­ingar, og Mið­flokkur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, eru sam­tals með ell­efu þing­menn, eins og mál standa nú, sam­kvæmt RÚV. Flokkur fólks­ins með 4 þing­menn og 6,9 pró­sent fylgi og Mið­flokk­ur­inn með 10,9 pró­sent fylgi og 7 þing­menn.

Vinstri flokk­arnir, Vinstri græn og Sam­fylk­ingin, bæta við sig sex þing­mönnum frá síð­ustu kosn­ingum, miðað við þessar tölur. Vinstri græn fá 11 þing­menn, og bæta við sig einum manni, en Sam­fylk­ingin, eins og áður segir, 8 þing­menn og bæta við sig fimm mönnum.

Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir á Alþingi eru með meiri­hluta þing­sæta - 32 af 63 - eins og staða mála er nú.

Píratar eru með 9,2 pró­sent fylgi og missa fjóra þing­menn frá síð­ustu kosn­ingum, en halda 6 þing­mönnum engu að síður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár