Deilt um breytingar á Kastrupflugvelli

Þegar Kastrup flug­völlur, sem dregur nafn sitt af sam­nefndu bæj­ar­fé­lagi á Amager var opn­aður 20. apríl 1925 hefur lík­lega fáa grunað að 90 árum síðar yrði hann fjöl­farn­asti flug­völlur á Norð­ur­löndum.

Yfir­stjórn Kastrup flug­vallar við Kaup­manna­höfn hyggst á næstu árum ráð­ast í miklar fram­kvæmdir. Stjórnin segir slíkt nauð­syn­legt vegna síauk­innar flug­um­ferðar. Land­rýmið við Kastrup er afar tak­markað og þess vegna vill stjórnin loka einni af þremur brautum vall­ar­ins. Þar verði reist nýtt flug­stöðv­ar­hús (term­inal) og jafn­framt einn brott­farar-og komu­gangur lengdur. For­svars­menn SAS og fleiri flug­fé­laga eru ósáttir við að flug­braut­inni verði lokað og það er Danska Flug­manna­fé­lagið einnig.

Þegar Kastrup flug­völlur, sem dregur nafn sitt af sam­nefndu bæj­ar­fé­lagi á Amager var opn­aður 20. apríl 1925 hefur lík­lega fáa grunað að 90 árum síðar yrði hann fjöl­farn­asti flug­völlur á Norð­ur­löndum. Flug­braut­irnar voru egg­slétt tún og yfir sum­ar­tím­ann var sauðfé beitt á braut­irnar, lif­andi og sam­visku­samar sláttu­vélar, og smalað þegar flug­vél nálg­að­ist. Flug­stöðv­ar­bygg­ingin er úr tré og þótti glæsi­legt mann­virki, hún hefur nú verið flutt til á flug­vall­ar­svæð­inu, er friðuð og ekki notuð.

Áratuga byggingaframkvæmdir

Nokkrum árum eftir að Kastrup flug­völlur var opn­aður hófust þar bygg­inga­fram­kvæmdir, sem segja má að að hafi staðið linnu­lítið síðan eða í um það bil 85 ár. Bundið slit­lag var lagt á aðal­braut vall­ar­ins árið 1941 og í lok síð­ari heims­styrj­aldar var Kastrup tal­inn einn besti og full­komn­asti flug­völlur í heim­inum. SAS flug­fé­lagið var stofnað árið 1946 og var frá upp­hafi ákveðið að Kastrup yrði aðal­flug­völlur félags­ins. Þetta var mik­ill búhnykkur, ef svo má að orði kom­ast, fyrir Kastrup. Ný flug­stöðv­ar­bygg­ing (Terminal 2) var tekin í notkun árið 1960. Þá var fyrsta flug­stöðv­ar­bygg­ingin fyrir löngu orðin of lítil, þrátt fyrir ýmsar við­bætur. 1954 hóf SAS áætl­un­ar­flug til Banda­ríkj­anna og þá jókst umferðin um Kastrup til muna.

Hugmyndir um flutning

Landrými við Kastrup flug­völl er mjög tak­markað. Byggð er í næsta nágrenni vall­ar­ins, sunnan við er bær­inn Dragör og Tárnby norðan megin. Austan megin er Eyr­ar­sund og veg­ur­inn að brúnni yfir til Sví­þjóðar liggur fast við flug­vall­ar­svæðið. Einu hugs­an­legu stækk­un­ar­mögu­leikar vall­ar­ins eru til vest­urs en yrði þó allt annað en ein­falt. Á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar voru uppi hug­myndir um að færa flug­völl­inn út í Eyr­ar­sund, á eyj­una Salt­hólmann sem liggur austan við Eyr­ar­sunds­brúna. Ef það hefði orðið ofan á var hug­myndin að byggja brýr, aðra til Dan­merkur en hina til Sví­þjóðar. Þessar hug­myndir voru skoð­aðar mjög ítar­lega en á end­anum ákvað danska þingið, Fol­ket­inget, að flug­völl­ur­inn skyldi áfram vera á Kastrup. Kostn­aður og umhverf­is­mál réðu miklu í þeirri ákvörðun og þarmeð var Salt­hólma­hug­myndin, og fleiri til­lögur um flutn­ing, í raun úr sög­unni. Þingmenn og sér­fræð­ingar mátu það svo að þrátt fyrir tak­markað land­rými gæti Kastrup gegnt sínu hlut­verki um langa fram­tíð. Einn stærsti kostur Kastrup er stað­setn­ingin: tæpir átta kíló­metrar til mið­borgar Kaup­mann­hafnar, hrað­brautin til Sjálands og áfram vestur er fast við völl­inn og sú braut liggur jafn­framt yfir sundið til Sví­þjóðar.

Þriðja flugstöðvarhúsið og sífellt fleiri farþegar

Eins og áður sagði hafa, ef allra fyrstu árin eru und­an­skilin, bygg­inga­fram­kvæmdir stans­laust verið í gangi á Kastrup. Upp­haf­lega flug­stöðv­ar­bygg­ingin (Terminal 1) er ekki lengur í notkun, húsið er friðað en hefur verið flutt til á svæð­inu og annað hús ber nú heitið Terminal 1. Árið 1998 var tekin í notkun ný flug­stöðv­ar­bygg­ing, Terminal 3, hana þekkja íslenskir ferða­langar sem fara um Kaup­manna­höfn vel. Þessi bygg­ing teng­ist járn­braut­inni, sem liggur til Kaup­manna­hafnar og ann­arra lands­hluta í Danmörku og yfir til Sví­þjóðar. Úr Terminal 3 er líka inn­an­gengt í Metro lest­ina sem brunar á nokk­urra mín­útna fresti inn í mið­borg Kaup­manna­hafnar.

Farþegum sem um völl­inn fara fjölgar stöðugt, á síð­asta ári voru þeir tæp­lega 27 millj­ónir og lend­ingar og flug­tök sam­tals 255 þús­und. Stærsti ”við­skipta­vin­ur­inn” er SAS, á síð­asta ári voru tæp­lega 40% allra ferða um völl­inn á vegum þess.

Vilja loka stystu brautinni og byggja nýtt flugstöðvarhús

Á Kastrup flug­velli eru þrjár brautir. Tvær þeirra liggja hlið við hlið, frá suð­vestri til norð­aust­urs en ríkj­andi vind­áttir á þessu svæði eru suð­vestan og vestan. Aðflug og flug­tak á þessum brautum er yfir Eyr­ar­sund og Köge Bugt og þess vegna ekki yfir byggð. Þriðja brautin liggur þvert á hinar tvær: frá suð­austri til norð­vest­urs. Við lend­ingar og flug­tak á þess­ari braut er flogið lágt yfir Frederiks­berg og hluta Amager með til­heyr­andi ónæði fyrir íbú­ana. Þessari braut, kölluð 12/30, vill stjórn flug­vall­ar­ins loka. Hags­munir íbúa, sem ugg­laust myndu fagna lokun, er þó ekki það sem ræður för hjá stjórn­inni.

Af hverju að loka þverbrautinni?

Í fljótu bragði kann að virð­ast und­ar­legt að loka einni af þremur brautum á flug­velli þar sem umferðin fer sívax­andi. For­stjóri flug­vall­ar­ins segir að þegar betur sé að gáð eigi það sér ein­faldar skýr­ingar. Um þver­braut­ina fari ein­ungis pró­sentu­brot af umferð­inni og þótt lokun hennar hafi í för með sér að kannski verði að fresta 60 lend­ingum eða flug­tökum á ári séu það smá­munir miðað við ávinn­ing­inn. Verði braut­inni lokað er ætl­unin að byggja við norð­vest­ur­enda hennar flug­stöð, sem teng­ist núver­andi aðal­bygg­ingu en verður fyrst og fremst ætluð lággjalda­fé­lögum en mikil aukn­ing hefur orðið á ferðum þeirra að und­an­förnu. Athafna­svæði flug­véla muni aukast, sem ekki er van­þörf á að mati flug­vall­ar­stjór­ans. Hann segir að þessi breyt­ing muni hafa í för með sér að lend­ingum og flug­tökum geti fjölgað um 55 þús­und á ári og verði fleiri en 300 þús­und. Farþegum um völl­inn fjölgi í allt að fjöru­tíu millj­ónir (voru 27 millj­ónir í fyrra) og starfs­manna­fjöld­inn á vell­inum tvö­fald­ist en nú vinna þar rúm­lega 22 þús­und manns.

Ekki góð hugmynd segir SAS og danskir flugmenn eru því sammála

For­svars­menn SAS eru ekki hrifnir af fyr­ir­ætl­unum flug­vall­ar­stjórn­ar­innar. Þeir segja það skapa óör­yggi að flug­völl­ur­inn geti lok­ast í ákveðnum vind­áttum. Þótt slíkt yrði ekki ekki algengt geti það valdið miklum töfum og óþæg­indum fyrir flug­fé­lögin og far­þeg­ana. Danska flug­manna­fé­lagið tekur í sama streng og telur það einnig örygg­is­at­riði að hafa þver­braut­ina opna áfram. Talsmenn nokk­urra ann­arra félaga sem nota Kastrup, t.d. Thomas Cook Airlines taka undir þessa gagn­rýni.

Hvort fyr­ir­ætl­anir flug­vall­ar­stjórn­ar­innar nái fram að ganga er óljóst á þess­ari stundu. Margir þing­menn vilja láta athuga þetta mál mjög gaum­gæfi­lega áður en lengra verði haldið og ákvarð­anir um hugs­an­lega lokun teknar. Flug­vall­ar­málið kemur til kasta þings­ins fljót­lega eftir að það kemur saman í byrjun októ­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár