Störukeppni milli Ítalíu og ESB

Hvorki ítölsk stjórn­völd né yfir­stjórn ESB virð­ast ætla að gefa sig í deilu um fjár­mál Ítalíu á næsta ári. Sér­fræð­ingar eru ugg­andi yfir stöð­unni, en þeir telja hana geta stefnt Evr­ópu­sam­starfi í hættu og styrkt mál­stað þjóð­ern­iss­ina víða um álf­una.

Forsætisráðherra Ítalíu, Giuseppe Conte, tekur hér í höndina á Angelu Merkel, kanslara Þýskalands. Forseti Framkvæmdastjórnar ESB, Jean-Claude Juncker, fylgist með.
For­sæt­is­ráð­herra Ítalíu, Giuseppe Conte, tekur hér í hönd­ina á Angelu Merkel, kansl­ara Þýska­lands. Forseti Fram­kvæmda­stjórnar ESB, Jean-Claude Juncker, fylgist með. Mynd: EPA

Pólitísk störu­keppni er hafin milli Ítalíu og yfir­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins vegna trega ítal­skra stjórn­valda til að standa við opin­berar skuld­bind­ingar sínar. Ósættið er talið þjóna skamm­tíma­hags­munum stjórn­mála­manna víðs vegar um evru­svæðið, en hætta er á að sam­starf milli Evr­ópu­þjóða til langs tíma sé í hættu ef ekk­ert verður að gert. Þetta kemur fram í skoð­anapistli hag­fræði­pró­fess­ors­ins Luigi Zingales í New York Times á dög­unum.

Í síð­ustu viku ákvað fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins að hafna fjár­lögum Ítalíu fyrir næsta ár, en Valdis Dombrovskis, aðstoð­ar­for­seti fram­kvæmd­ar­stjórn­ar­innar, sagði sam­bandið ekki eiga ann­arra kosta völ. Ástæða höfn­un­ar­innar er sú að frum­varpið gerir ráð fyrir miklum fjár­laga­halla vegna auk­inna rík­is­út­gjalda og skatta­lækk­un­ina. Hallinn myndi leiða til auk­innar skulda­söfn­unar ítalska rík­is­sjóðs­ins sem nú þegar er orðin of mikil sam­kvæmt Stöð­ug­leika-og vaxt­ar­sam­omu­lagi aðild­ar­ríkja á evru­svæð­inu.

[links]Kjarninn hefur áður fjallað um umrædd fjár­lög, en rík­is­stjórn Ítalíu til­kynnti frum­varpið til þeirra í síð­asta mán­uði. Frum­varpið vakti óhug meðal ítal­skra fjár­mála­mark­aða og óflokks­bund­inna ráð­herra, en óvíst var hvort það stæð­ist stjórn­ar­skrá lands­ins.

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir tveir, popúlista­flokk­arnir M5S og Lega, fara þó jákvæðum orðum um áætl­an­irnar í frum­varp­inu og sagði for­maður M5S að með þeim yrði „fátækt­inni útrýmt“ í land­inu.

Störukeppni

Samkvæmt pistli Zingales þjóna ákvarð­anir valda­mestu ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins og Ítalíu hags­munum beggja aðila til skamms tíma, þar sem heppi­legt er fyrir rík­is­stjórn Ítalíu ann­ars vegar og Þýska­lands og Frakk­lands hins vegar að kenna öðrum aðild­ar­ríkjum um óstöð­ug­leika á evru­svæð­inu. Hins vegar sé þessi „störu­keppni“ olía á eld þeirrar efna­hags­legrar og póli­tískrar spennu sem ríkir innan sam­bands­ins. Aukist hún er veru­leg hætta á að Ítalía segi sig úr evru­sam­starf­inu.

Efnahagslegur harmleikur Ítalíu

Vandamál Ítalíu gagn­vart Evr­ópu­sam­band­inu hafa langan aðdrag­anda. Þjóð­ar­tekjur á mann þar í landi eru nær óbreyttar frá því sem þær voru fyrir ald­ar­fjórð­ungi síðan og hátt atvinnu­leysi hefur leitt til þess að nær 200 þús­undir ung­menna flytja burt á ári hverju. Samhliða miklum speki­leka sem fylgir útflutn­ingi ungra Ítala og dregur úr hag­vaxt­ar­horfum til fram­tíðar hefur ört hækk­andi með­al­aldur þjóð­ar­innar leitt sívax­andi skulda­byrði hins opin­bera sem gerir rík­is­stjórn­unum erfitt að fjár­magna grunn­þjón­ustu sína.[adspot]

Gylfi Zoëga gerði vanda­mál Ítalíu að umfjöll­un­ar­efni sínu í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar og sýndi þar fram á hversu mikið staða lands­ins gagn­vart Þýska­landi versn­aði á árunum 1999-2014. Fyrir fjórum árum síðan voru með­al­tekjur Þjóð­verja fjórð­ungi hærri en með­al­tekjur Ítala, sem er stór breyt­ing frá árinu 1999 þegar þjóð­irnar tvær voru í nær sömu sporum.

Síðustu ár hafa heldur ekki verið gjöful fyrir Ítalíu, en hag­vöxtur frá árinu 2014 hefur verið í kringum eitt pró­sent. Nýjustu árs­fjórð­ungs­tölur voru einnig nokkuð undir vænt­ingum, en hag­vöxtur lands­ins á síð­asta árs­fjórð­ungi þessa árs var nákvæm­lega 0 pró­sent.

ESB meðsekt

Bæði Gylfi og Zingales telja hluta af sök­inni vegna slæmra horfa á Ítalíu liggja hjá Evr­ópu­sam­band­inu þar sem ekki ríkja sam­eig­in­legar reglur í álf­unni um upp­gjör þrota­búa og rétt kröfu­hafa og spari­fjár­eig­enda, auk þess sem seðla­banki Ítalíu geti ekki lánað rík­is­sjóð sínum pen­ing ef hann verður gjald­þrota.

Án nauð­syn­legrar sam­ein­ingar í fjár­mála­kerfi Evr­ópu­sam­bands­ins aukast líkur á greiðslu­falli ítal­skra banka í kjöl­far verð­falls á rík­is­skulda­bréfum þar í landi, en slíkt kæmi einnig niður á önnur ríki ESB. Til að hruni verði afstýrt sé nauð­syn­legt fyrir Evr­ópu­sam­bandið að end­ur­skoða skuldir Ítalíu og ekki þvinga þjóð­ina til þess að bera byrði af allri end­ur­greiðslu þeirra.

Eldar þjóðernishyggju varhugaverðir

Mikið er í húfi fyrir báða aðila að fjár­mála­kerfi Ítalíu verði stöðugra, en sjóðir Evr­ópu­sam­bands­ins eru ekki nógu stórir til þess að bjarga rík­is­sjóð lands­ins, fari svo að hann lendi í greiðslu­þroti. Sú nið­ur­staða gæti leitt til enda­loka evru­sam­starfs­ins eins og við þekkjum það og aft­ur­hvarfs til þjóð­hyggju og minni sam­starfs milli ríkja. Zingales varar við hættum þess að setja skuldugri þjóð þröngar skorður og nefnir í því sam­hengi Þýska­land við lok fyrri heims­styrj­aldar. Sama tón má finna í pistli Gylfa, en hann von­ast til þess nýjar kyn­slóðir „kveiki ekki sömu elda“ þjóð­ern­is­hyggju og brunnu á síð­ustu öld­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár