„Fátæktinni útrýmt“ með nýjum fjárlögum

Fyrsta fjár­mála­frum­varp nýrrar rík­is­stjórnar Ítalíu verður tekið fyrir á þingi næstu dag­ana. Samkvæmt for­manni eins rík­is­stjórn­ar­flokks­ins mun frum­varpið marka útrým­ingu fátæktar í land­inu, en aðrir eru ekki jafn­sann­færðir um það.

Luigi Di Maio, atvinnuráðherra Ítalíu og leiðtogi Fimmstjörnuhreyfingarinnar, síðasta fimmtudagskvöld.
Luigi Di Maio, atvinnu­ráð­herra Ítalíu og leið­togi Fimm­stjörnu­hreyf­ing­ar­innar, síð­asta fimmtu­dags­kvöld. Mynd: EPA

Síðasta fimmtu­dags­kvöld steig Luigi Di Maio, for­maður ítölsku Fimm­stjörnu­hreyf­ing­ar­innar (M5S), út á svalir Chigi-hall­ar­innar í Róm með sam­flokks­mönnum sínum og veif­aði til ljós­mynd­ara, sigri hrós­andi.

Ástæða fagn­að­ar­lát­anna var sú að rík­is­stjórnin, sem sam­anstendur af popúlista­flokk­unum M5S og Lega Nord, hefur náð sam­komu­lagi um fjár­laga­frum­varp til næsta árs. Hins vegar, þrátt fyrir fagn­að­ar­læti Di Maio og félaga, er mögu­legt að frum­varpið gæti leitt til alvar­legra lang­tíma­af­leið­inga fyrir Ítalíu og jafn­vel Evr­ópu­sam­bandið í heild sinni.

Fátæktinni útrýmt

„Við munum, með þessum aðgerðum og þessum fjár­lögum, útrýma fátækt­inni með ákveðnum hætti,“ sagði Di Maio þegar hann var spurður út í fjár­laga­frum­varpið í ítölskum spjall­þætti fyrr í vik­unni.

Yfir­lýs­ingar hans eru í takt við kosn­inga­lof­orð M5S, en flokk­ur­inn lof­aði mik­illi útgjalda­aukn­ingu úr rík­is­sjóði, meðal ann­ars til að tryggja fátækum fjöl­skyldum borg­ara­laun og hækka elli­líf­eyri. Samhliða þessu lof­aði flokk­ur­inn einnig stór­felldri skatta­lækk­unum á fyr­ir­tæki, auk afnáms 400 „til­gangs­lausra“ reglu­gerða sem áttu að hægja á efna­hags­líf­inu.

Samið við Lega

Áherslur M5S í efna­hags­málum voru einnig sam­þykktar af hinum rík­is­stjórn­ar­flokknum, Lega Nord, þótt báðir flokk­arnir komi úr ólíkum áttum. Sá fyrr­nefndi varð til sem gras­rót­ar­hreyf­ing gegn spill­ingu í ríkj­andi valda­flokkum, en Lega á rætur sínar að rekja til fas­ism­ans og beinir jafnan spjótum sínum að inn­flytj­endum og róma­fólki. Svo virð­ist sem Lega hafi ákveðið að sam­þykkja efna­hags­stefnu M5S svo lengi sem rík­is­stjórnin sýni aukna hörku gagn­vart flótta­mönnum, sam­kvæmt sam­eig­in­legri stefnu­yf­ir­lýs­ingu flokk­anna.

Gegn áformum fjármálaráðherra

Álits­gjafar og aðrir sér­fræð­ingar voru þó margir hverjir full­vissir um að lítið yrði úr lof­orðum beggja flokk­anna, þar sem rík­is­skuldir væru háar og mik­ill þrýst­ingur væri frá Evr­ópu­sam­band­inu um að ná þeim niður. Þvert á vænt­ingar kynnti nýja rík­is­stjórnin mikla útgjalda­aukn­ingu í nýju frum­varpi, en gert er ráð fyrir að halli á fjár­lögum rík­is­sjóðs muni aukast úr 1,6 pró­sentum af lands­fram­leiðslu upp í 2,4 pró­sent.

Slíkur halli gæti gjör­breytt efna­hags­horfur lands­ins til langs tíma og eru langt umfram það sem fjár­mála­ráð­herra lands­ins taldi leyfi­legt. Ráð­herr­ann, sem er óflokks­bund­inn hag­fræði­pró­fessor, hafði reiknað að halli rík­is­sjóðs mætti mesta lagi fara upp í 1,6 pró­sent ef skuldir hins opin­bera ættu ekki að aukast. Líklegt er því að opin­berar skuldir muni aukast ef frum­varpið nær í gegn, en þær standa nú í 131 pró­senti af lands­fram­leiðslu Ítalíu og eru þær næst­hæstu í allri Evrópu, á eftir Grikk­landi.

Virðir ekki reglurnar

Þrátt fyrir að til­lög­urnar boði meiri þenslu en fjár­mála­ráð­herr­ann mældi með hefur hann samt sem áður ákveðið að sitja enn sem ráð­herra og mun því að öllum lík­indum skrifa undir frum­varpið. Við­brögðin voru harð­ari í Brussel, en efna­hags­full­trúi Evr­ópu­sam­bands­ins Pierre Moscovici gaf ítölsku rík­is­stjórn­inni tón­inn á föstu­dag­inn. „Við höfum engan áhuga á krísu milli fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins og Ítalíu, þar sem landið er mik­il­vægt á evru­svæð­inu. Hins vegar höfum við heldur engan áhuga á að Ítalía virði ekki regl­urnar og lækki ekki skuldir sínar, sem eru hættu­lega háar,“ sagði Moscovici í frönskum spjall­þætti nú á föstu­dag­inn. Einnig bætti hann við að nið­ur­greiðsla slíkrar skulda myndi þýða minni fjár­fest­ingu í vega­kerf­inu, menntun og félags­mál á Ítalíu í fram­tíð­inni.

Vandræði í stjórnarskránni

Auk þess sem til­lögur Di Maio og félaga brjóta í bága við stefnu Evr­ópu­sam­bands­ins er einnig óljóst hvort þær séu leyfi­legar sam­kvæmt stjórn­ar­skrá lands­ins. Í nýrri grein stjórn­ar­skrár­innar, sem bætt var við í kjöl­far evru­krepp­unnar árið 2012, er þess kraf­ist af rík­inu að reka fjár­lög með sem minnstum halla ef efna­hagur lands­ins er ekki í nið­ur­sveiflu. Di Maio hefur áður sagst vilja eyða umræddri grein úr stjórn­ar­skránni, en for­sæt­is­ráð­herra lands­ins, sem er óflokks­bund­inn, hefur þver­tekið fyrir það.

Markaðir óhressir

Fjár­mála­mark­aðir brugð­ust ekki vel við fagn­að­ar­lát­unum á svöl­unum í Róm síð­asta fimmtu­dag, en vextir til tíu ára ítal­skra rík­is­skulda­bréfa hækk­uðu ört eftir opnun mark­aða á föstu­dag­inn auk þess sem vísi­tala Kaup­hall­ar­innar í Mílanó lækk­aði um fjögur pró­sent. Munur á vöxtum ítal­skra og þýskra rík­is­skulda­bréfa hefur farið ört vax­andi frá myndun rík­is­stjórnar M5S og Lega, en hann end­ur­speglar þverr­andi traust fjár­festa á Ítalíu.

Kosið verður um frum­varpið á næstu vikum, en skiptar skoð­anir eru á því hver lang­tíma­á­hrif þess verða á ítalskt efna­hags­líf, nái það í gegn. Evr­ópu­sam­bandið, fjár­festar og óflokks­bundnir ráð­herrar eru þó ekki enn sann­færðir um að Di Maio muni takast ætl­un­ar­verk sitt að „útrýma fátækt“ fyrir fullt og allt. Þess í stað trúa margir þeirra að þenslan gæti leitt til enn meiri fátæktar á Ítalíu á næstu árum, þegar tími er kom­inn til þess að borga loks skuld­irnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár