Lukku Láki sjötugur

Mynda­sögu­há­tíðin í Angoulême í Frakk­landi, Festival international de la bande dess­inée d’Angoulême, var sett í vik­unni. Hún er mikið til umfjöll­unar í frönskum fjöl­miðlum þar sem kynja­halli, hryðju­verk, póli­tík og fleira hefur borið á góma, enda lifir mynda­sagan góðu lífi í Frakk­landi. Katsu­hiro Otomo, sem stundum er kall­aður „Victor Hugo mynda­sög­unnar“ er sér­stak­lega heiðr­aður á hátíð­inni, en sá sem stelur sen­unni er afmæl­is­barnið – sjálfur Lukku Láki - sem fagnar sjö­tugs­af­mæli sínu um þessar mundir. Sett hefur verið upp sér­stök sýn­ing, sem mun standa fram á haust, um þennan ein­mana kúreka sem er sneggri en sjálfur skugg­inn að skjóta. Heiðurs- og afmæl­is­rit hafa verið gefin út í til­efni þessa og auð­vitað haugur af fræði­greinum þar sem velt er upp spurn­ing­unni: Hvernig hefur svo Lukku Láki elst?

L´Art De Morris

Þessi göf­ugi kúreki virð­ist höfða til marga. Bækurnar um Lukku Láka eru vin­sæl­ustu og mest seldu mynda­sögur sem komið hafa út í Evrópu, alls 78 bækur sem selst hafa í 300 millj­ónum ein­taka. Lukku Láki hefur verið þýddur yfir á 29 tungu­mál.

Bækurnar um Lukku Láka eru partur af belgísku gullöld­inni í mynda­sögu­gerð; í flokki með Tinna, Sval og Val, Strump­unum, Blake & Mortimer, Viggó Viðutan og fleiri. Morris er því lyk­il­maður í hinum belgíska mynda­sagna­heimi. Einn af fjög­urra manna geng­inu víð­fræga ásamt þeim Jijé, André Franquin og Will. Menn sem umbreyttu mynda­sög­unni í Evrópu. Þetta gengi fór saman í ferð til Banda­ríkj­anna 1948 sem hafði mikil áhrif á Morris. Hann dvaldi í Vest­ur­heimi í sex ár og ákvað þar að ein­beita sér að Lukku Láka og villta vestr­inu. Í Ameríku vann hann fyrir tíma­ritið Mad og kynnt­ist þar sínum helsta sam­starfs­manni, Réne Goscinny. Á þessum árum við­aði Morris að sér efni og stúd­er­aði kvik­mynda­tækni sem hann nýtti sér í mynda­sögum sínum. Sögurnar um Lukku Láka ger­ast í villta vestr­inu og eru upp­fullar af til­vís­unum í sögu­legar per­sónur og atburði.

Lukku Láki er sköp­un­ar­verk og hug­ar­fóstur Morris sem teikn­aði þennan ein­mana kúreka frá 1946 til 2001. Sögurnar birt­ist í mynda­sögu­blað­inu Spirou fyrstu tutt­ugu árin en fóru síðan að koma út í sjálf­stæðum bókum. Þær fóru svo á flug þegar Morris hóf sam­starf sitt með Frakk­anum Goscinny árið 1955 sem stóð allt til 1977. Þar sam­ein­uðu tveir snill­ingar krafta sína: Morris sem var frum­legur og flinkur teikn­ari og rit­höf­und­ur­inn og húmorist­inn Goscinny, sem sömu­leiðis vann sög­urnar um Ástrík og félaga. Þegar Goscinny féll frá fylltu aðrir höf­undar skarðið og svo þegar Morris lést 2001 tók Frakkinn Achdé við stjórn­ar­taum­inum ásamt rit­höf­und­inum Laurent Gerra. Síðasta bók þeirra, Les tonton Daltons, kom út 2014.

Þeir sem á eftir koma reyna að feta í fót­spor Morris og fylgja hans hefðum. Hann er sann­ar­lega einn af meistörum mynda­sög­unnar sem hefur borið hróður níunda list­grein­ar­innar út um allan heim. Hann hugs­aði mynda­sögur eins og kvik­mynda­list; spáði mikið í sjón­ar­horn, hlut­föll og form­gerð. Hann lék sér með að nær­myndir, ljós og skugga. Skugga­myndir af Lukku Láka, spegla­myndir og ýmis­konar fjar­vídd­ar­leikir með Daltón-bræð­urnar eru dæmi um þessa tækni og list Morris sem var á sínum tíma bylt­ing­ar­kennd; sjón­ar­hornið oft ofan frá, hann lék sér með liti og breytti stundum yfir í svart/hvítt eða svart/rautt, allt eftir fram­vindu og stemn­ingu sög­unnar.

Einmana kúrekinn og sögulegar persónur

Eins og með nafn­lausa kúrek­ann í Spag­hetti-vestr­unum, vitum við lítið um upp­runa Lukku Láka; hvaðan hann kemur – eða hvert hann er að fara. Eina sem gefið er uppi um það er í lok hverrar bókar, þegar hann ríður inn í sól­ar­lagið, blístrar og syngur:

„Ég er ein­mana, fátækur kúreki, kom­inn langt burt að heiman“

Hann er alltaf jafn gam­all, hefur ein­staka skot­hæfni, drepur aldrei neinn, útsjón­ar­samur og skarpur en kannski fyrst fremst heið­virður ridd­ari og vinur litla manns­ins sem kemur til hjálpar á ögur­stundu í bar­átt­unni gegn hinu illa. Hestur hans Léttfeti er gáf­að­asti hestur í heimi og stundum fylgir þeim heimskasti hundur í heimi, Rattati. Erki­fj­end­urnir eru síðan Daltón-bræður sem eiga sér raun­veru­lega fyr­ir­mynd í banarískri sögu. Daltón-bræðra­gengið sem rændi og rupl­aði á árunum 1890-1892.

Helstu hetjur og skúrkar villta vest­ur­ins verða á vegi Lukku Láka: Billy the Kid, Jesse James og Roy Bean. Sögu­frægar per­sónu eins og Abraham Lincoln, Sara Bernhard, Sigmund Freud og furðu­fígúrur eins og Joshua Norton (Smith keis­ari) skjóta líka upp koll­inum. 

Morris lék sér líka með ýmsar fyr­ir­myndir: Langi Láki einn skæð­asti óvinur Lukku Láka (senni­lega sá eini sem Lukku Láki skýtur með byssu­kúlu – sem að hann hefur svo aldrei gert, hvorki fyrr né síðar) er byggður á per­són­unni Shane sem Jack Palance túlk­aði eft­ir­minni­lega. Morris not­aði sömu­leiðis leik­ara og tón­list­ar­menn eins og Lee Van Cleef, Serge Gainsbourg, David Carradine, Louis de Funés, William Henry Platt (sem Franken­stein) og ýmsa fleiri sem fyr­ir­myndir.

Mikið er um dýrðir í til­efni sjö­tugs­af­mælis Láka. Sérstök sýn­ing er í gangi bænum Angoulême og Langi Láki, sem margir telja vera bestu bók­ina, kemur út í sér­stakri hátíð­ar­út­gáfu, stút­full af auka­efni þar sem m.a. sá Langi er drep­inn!

Láki lifir enn

Morris var oft gagn­rýndur fyrir sígar­ett­una sem Lukku Láki var stöðugt með upp í sér, þess á milli sem hann var að vefja sér nýja. Hann hrein­lega keðjureykti þangað til að hann hætti 1984 og hefur síðan þá ein­ungis tuggið strá. Fyrir vikið fékk Morris ver­laun frá Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni, enda eitt fræg­asta reyk­ing­ar­stopp lista­sög­unnar. Þetta var ekki síst gert fyrir banda­rískan markað en Lukku Láki er sú evr­ópska mynda­saga sem hefur ná hvað mestum vin­sældum vestra. Hanna Barbara og gerði vin­sælar teikni­myndir byggðar á bóka­flokknum, þrjár stórir kvik­myndir hafa verið gerðar um Láka og Play Station gerði svo vin­sælan tölu­veik. Spin-off bækur og teikni­myndir hafa verið gerðar og von er á ýmsu góð­gæti í ár í til­efni afmæl­is­ins. Einungis 33 bækur hafa verið þýddar yfir á íslensku – við skulum vona að fleiri komi út á hátíð­ar­ár­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár