Einleikjasaga Íslands

Elfar Logi Hann­es­son er hel­tek­inn af ein­leikjum. Hann vill skrifa sögu íslenskra ein­leikja og safnar fyrir því á Karolina fund. Söfn­un­inni lýkur í næstu viku.

Sigurður Sigurjónsson í einleiknum Maður sem heitir Ove.
Sigurður Sig­ur­jóns­son í ein­leiknum Maður sem heitir Ove. Mynd: Hörður Sveinsson

Elfar Logi Hann­es­son, höf­undur Ein­leikja­sögu Íslands, hefur verið með ein­leiki á heil­anum allt frá því hann lenti óvænt í því að leika einn. Eftir að Elfar flutti aftur vestur eftir erf­iða sam­búð við Reykja­vík þá tók hann litla leik­húsið sitt með sér, Kómed­íu­leik­húsið og hugð­ist starf­rækja það þar vestra. En þegar þangað var komið komst hann að því að hann var eini atvinnu­leik­ar­inn búandi á Vest­fjörðum og því kom ekk­ert annað til greina en að setja upp ein­leik.

Síðan hefur Elfar Logi nán­ast ávallt verið einn á svið­inu. Árið 2004 stofn­aði hann Act alone ein­leikja­há­tíð­ina sem hefur verið haldin árlega síðan og er nú orðin ein vin­sælasta lista­há­tíð lands­byggð­ar­innar. Til­gangur hátíð­ar­innar er fyrst og fremst sá að kynna hið ein­staka ein­leikja­form fyrir land­anum sem og gestum er sækja okkur heim. Kómed­íu­leik­húsið er útgef­andi Ein­leikja­sögu Íslands og er fyrsta og eina atvinnu­leik­hús Vest­fjarða. Leik­húsið hefur sett upp um 40 leik­verk þeirra þekkt­ust eru Gísl­arnir tveir, Gísli Súrsson og Gísli á Uppsölum. Svo segja má að Kómedían sé í Gísla­töku og unnir því bara vel. Kjarninn hitti Elfar Loga og tók hann tali.

[adspot]

Hvaða merk­ingu hefur það að skrá sögu ein­leikja á Íslandi?

„Ein­leik­ur­inn hefur sann­lega verið partur af hinum íslenska lista­lífi lík­lega bara alveg frá land­námi. Vissu­lega hefst ein­leikja­sagan íslenska strax þegar land byggð­ist því eins og við vitum þá er lífið ekki bara salt­fiskur og puð, eitt­hvað verður nú að hafa til skemmtan til að kom­ast í gegnum 24 stund­irnar. Þá sem nú var ávallt einn, ef ekki fleiri, sem var meira fyrir það að leika en að vinna. Féll það einmitt í hins leik­glaða að hafa ofan af fyrir blessuðu fólk­inu að dagstriti loknu segja þeim sögur, kvæði, syngja og spila.

Með þessum hætti varð­veitt­ust einmitt Íslend­inga­sög­urnar, sagðar kyn­slóð fram af kyn­slóð, þar til þær voru loks skráðar á bók­fell. Þrátt fyrir langa og ein­staka sögu ein­leikja­list­ar­innar á Íslandi hefur ekki mikið fyrir henni farið og kannski einkum vegna þess að aðeins einn leik­ari er í hverju verki og fá því leik­irnir jafnan minna umtal og fjöl­miðla athygli en hinn mann­frek­ari leik­verk.

Það var því ekk­ert annað að gera en að ein­leik­ari færi bara í það að skrá sög­una og hefur sú vinna staðið yfir í lík­lega ára­tug og er nú til­búin. Nú er bara að vona að við náum fullu húsi í Karolina fund söfnun okkar ann­ars náum við ekki að styðja og prenta og bókin fær ekki fætur. En við lifum ekki bara í draumi heldur í von­inni og erum bjart­sýn.“

Eru til mis­mun­andi gerðir ein­leikja?

„Ein­leik­ur­inn er sann­ar­lega fjöl­breytt list­form þó margir telji kannski í fyrstu þetta vera ein­hæft og ein­falt. Það er ein­leik­ur­inn akkúrat ekki. Eina reglan er að það sé aðeins einn leik­ari, lista­maður, á sen­unni, allt hitt er opið. Þannig getur ein­leik­ur­inn verið ein­falt sögu­manns­verk yfir í það að vera uppi­stand og allt í hátækni­legt dramat­ískt verk. Inn í þetta getur flétt­ast dans, tón­list og ég veit ekki hvað. Mögu­leik­arnir eru svo margir það er bara að láta hug­ann fara á flug. Ef svo skemmti­lega vill til að ef Ein­leikja­sagan kemur út, nú vantar aðeins 53. pró­sentur uppá að ræsa prent­vélar, þ.e. þegar þessu er svarað, þá má lesa hve fjöl­breyttur ein­leik­ur­inn er. Í bók­inni er sagt frá sagna­mönnum fyrstu aldar, frá föru­ein­leik­urum sem flökk­uðu á milli bæja og skemmtu fólki og fengu að launum mat og bedda. Einnig er sagt frá sýn­is­ein­leik­urum þ.e. lista­mönnum sem hafa verið til sýnis má þar nefna Jóhann risa Pét­urs­son og loks fer sagan inn í leik­húsið þar sem ein­leik­ur­inn hefur átt sífellt meiri vin­sælda að fagna einkum hin seinni ár.“

Að hvaða leyti er ein­leikur öðru­vísi sýn­ing en sú sem inni­heldur fleiri leik­ara?

„Þetta er sann­ar­lega góð spurn­ing. Munurinn felst í raun í nokkrum orðum svars­ins. Eini mun­ur­inn er sá að það er aðeins einn leik­ari á svið­inu í stað fleiri. Já, ég veit þetta er alveg ein­leikið en samt alveg satt.“

Hægt er að skoða verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár