Fjöldatakmarkanir hækkaðar í 50 manns frá og með næsta mánudegi

Opn­un­ar­tími veit­inga­staða verður lengdur um klukku­stund, leyfi­legur fjöldi í versl­unum tvö­fald­ast, fleiri mega vera í sundi og fara í rækt­ina. Grímu­skylda verður hins vegar óbreytt.

Bólusetningar ganga nú mjög hratt fyrir sig á Íslandi og samhliða dregur úr takmörkunum.
Bólu­setn­ingar ganga nú mjög hratt fyrir sig á Íslandi og sam­hliða dregur úr tak­mörk­unum. Mynd: Af vef stjórnarráðsins

Frá og með næst­kom­andi mánu­degi, 10. maí, fara fjölda­tak­mark­anir úr 20 í 50 manns, sund- bað­staðir og lík­ams­rækt­ar­stöðva mega taka á móti 75 pró­sent af leyfi­legum hámarks­fjölda gesta, hámarks­fjöldi þátt­tak­enda í íþróttum og sviðs­listum verður 75 í hverju hólfi eða á sviði og hámarks­fjöldi gesta á sitj­andi við­burðum fer úr 100 í 150 manns.

Þá verður opn­un­ar­tími veit­inga­staða lengdur um klukku­stund og þeim gert að vera tómir eftir klukkan 23. Þá verða líka gerðar ákveðnar til­slak­anir á skóla­starfi. Nýju regl­urnar munu gilda í tvær vikur. Grímu­skylda verður áfram við lýði með óbreyttum hætti.

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra kynnti þessar breyt­ingar á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun.

[adspot]Þar kom einnig fram að í minn­is­blaði Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis til Svan­dísar, sem breyt­ing­arnar byggja á, hafi líka komið fram að ýmsar aðgerðir á landa­mærum sem gripið var til vegna hóp­sýk­inga sem í upp­hafi voru raktar til ferða­manna á landa­mærum sem ekki héldu reglur um sótt­kví og/eða ein­angrun hafi skilað árangri. „Und­an­farna daga hafi fá smit greinst á hverjum degi utan sótt­kvíar. Því megi ætla að tek­ist hafi að ná utan um fyrr­greind hópsmit þótt ekki sé hægt að segja að veiran sem veldur COVID-19 hafi verið upp­rætt úr sam­fé­lag­inu,“ segir í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Í lok síð­asta mán­aðar kynnti Svandís aflétt­ing­ar­á­ætlun varð­andi sótt­varna­ráð­staf­anir og sam­komu­tak­mark­anir. Þar kom fram að horft sé til þess að að öllum tak­mörk­unum inn­an­lands verði aflétt í lok júní, eða þegar um 75 pró­sent lands­manna yfir 16 ára aldri hafa fengið að minnsta kosti eina sprautu af bólu­efni.

Samkvæmt þeim veg­vísi var stefnt að því að hækka fjölda­tak­mark­anir upp í allt að 200 manns í byrjun maí, en sú dag­setn­ing hefur ekki náðst. Í síð­ari hluta maí, þegar um 50 pró­sent lands­manna 16 ára og eldri á að vera orð­inn bólu­settur að öllu leyti eða hluta þá á að hækka markið upp í allt að þús­und manns og breyta tveggja metra regl­unni í eins metra reglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár