Helm­ingi fleiri karl­ar sóttu um grunn­skóla­kenn­ara­nám

Umsóknum um kenn­ara­nám fjölg­aði veru­lega milli ára og segir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra það vís­bend­ingu um að aðgerðir stjórn­valda séu farnar að skila árangri. Þá fjölg­aði karl­kyns umsækj­endum veru­lega á milli ára.

Umsóknum um kenn­ara­nám fjölg­aði veru­lega á milli ári hér á landi eða um alls rúm­lega 200 umsókn­ir. Þá fjölg­aði umsóknum um grunn­nám í grunn­skóla­kenn­ara­fræðum um 45 pró­sent og þar af fjölg­aði karl­kyns umsækj­endum veru­lega. Alls sóttu helm­ingi fleiri karlar um grunn­skóla­kenn­ara­nám í Háskóla Íslands í vor en í fyrra og þrefalt fleiri karlar um nám í leiks­skóla­kenn­ara­fræðum. Frá þessu er greint í frétta­til­kynn­ingu frá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu.

Nemendum á leik- og grunnskólastigi býðst launað starfsnám

[links]Í mars síð­ast­liðnum kynnti Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, aðgerðir stjórn­valda til þess að taka á kenn­ara­skorti í land­inu. Aðgerð­irnar fela meðal ann­ars í sér launað starfs­nám, náms­styrk til nem­enda og styrki til starf­andi kenn­ara til náms í starfstengdri leið­sögn.

Frá og með þessu hausti býðst nem­endum á loka­ári í meist­ara­námi til kennslu­rétt­inda á leik- og grunn­skóla­stigi launað starfs­nám. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá háskól­unum gengur mjög vel að finna starfs­nám­stöður fyrir kenn­ara­nema en 96 pró­sent þeirra sem eftir því sækj­ast hafa þegar fengið stöðu.

Umsóknum um nám í listkennslu fjölgaði um 170 prósent

Síð­ast­liðið vor fjölg­aði umsóknum um kenn­ara­nám veru­lega á milli ára eða um rúm­lega 200 í háskól­unum fjórum sem bjóða upp á kenn­ara­nám hér á landi. Aukn­ing­ í umsóknum var hlut­falls­lega mest hjá Lista­há­skóla Íslands þar sem um­sókn­um um nám í list­kennslu­deild fjölg­aði um 170 pró­sent milli ára.

Jafn­framt fjölg­aði um­sókn­um um grunn­nám í grunn­skóla­kenn­ara­fræðum við Há­skóla Íslands um 45 pró­sent. Þá fjölg­aði veru­lega karl­kyns umsækj­endum í þeim hópi en um helm­ingi fleiri karl­ar sóttu um grunn­skóla­kenn­ara­nám í Há­skóla Íslands en í fyrra og þre­falt fleiri í nám í leik­skóla­kenn­ara­fræðum. Þá fjölg­aði einnig um­sókn­um um nám leið­sagna­kenn­ara.

Mennta-og menn­ing­ar­mála­ráð­herra segir það vera mikið fagn­að­ar­efni að vís­bend­ingar séu um að aðgerðir sem stjórn­völd réð­ust í síð­asta vor séu farnir að skila árangri. „Umsóknum um kenn­ara­nám fjölgar veru­lega milli ára og einnig gekk mjög vel að útvega kenn­ara­nemum á loka­ári laun­aðar starfs­náms­stöður. Til þess að mæta áskor­unum fram­tíð­ar­innar þurfum við enn fleiri fjöl­hæfa og dríf­andi kenn­ara og það er einkar ánægju­legt að fleiri íhugi nú að starfa á þeim vett­vangi,“ segir Lilja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár