Jákvæð viðbrögð við aðgerðunum sem miða að fjölgun kennara

Einn liður í aðgerðum stjórn­valda til þess að fjölga kenn­urum er að frá og með þessu hausti býðst nem­endum á loka­ári í meist­ara­námi til kennslu­rétt­inda á leik- og grunn­skóla­stigi launað starfs­nám.

„Við höfum fengið virki­lega jákvæð við­brögð við aðgerð­unum sem miða að fjölgun kenn­ara, frá skóla­sam­fé­lag­inu, sveit­ar­fé­lög­unum, kenn­ara­for­yst­unni og for­eldrum.“ Þetta segir Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, en frá þessu er greint á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í dag.

Liður í aðgerðum stjórn­valda til þess að fjölga kenn­urum er að frá og með þessu hausti býðst nem­endum á loka­ári í meist­ara­námi til kennslu­rétt­inda á leik- og grunn­skóla­stigi launað starfs­nám. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá háskól­unum gengur mjög vel að finna starfs­nám­stöður fyrir kenn­ara­nema en 96 pró­sent þeirra sem eftir því sækj­ast hafa þegar fengið stöðu.

Lilja segir að aðgerð­irnar hafi verið unnar í góðu sam­ráði og að sam­vinnan sé farin að skila góðum árangri. „Það er okkur kapps­mál að stuðla að öfl­ugu skóla­starfi og styrku mennta­kerfi – þar leika kenn­arar aðal­hlut­verkið.“

Umsóknum um kennaranám fjölgar verulega milli ára

Í starfs­námi kenn­ara­nema starfa þeir við hlið reyndra kenn­ara yfir heilt skólaár. Starfs­námið er sam­kvæmt mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu fjöl­breytt, kenn­ara­nemar sinni dag­legum störfum í skól­unum og kynni sér fjöl­breyttar kennslu­að­ferðir og starfs­hætti á þeim náms­sviðum eða náms­greinum sem þeir hyggj­ast sér­hæfa sig í. Starfs­námið sé mik­il­vægur liður í þjálfun kenn­ara­nem­anna og und­ir­bún­ingi þeirra fyrir frek­ari störf í skólum að lok­inni útskrift.

Lilja kynnti aðgerð­irnar þann 5. mars síð­ast­lið­inn en þær fela meðal ann­ars í sér launað starfs­nám, náms­styrk til nem­enda og styrki til starf­andi kenn­ara til náms í starfstengdri leið­sögn. Aðgerð­irnar eiga sem sagt að taka á kenn­ara­skorti í land­inu.

Umsóknum um kenn­ara­nám fjölg­aði veru­lega milli ára síð­ast­liðið vor eða alls um rúm­lega 200 í háskól­unum fjórum sem bjóða upp á kenn­ara­nám hér á landi.

Aðgerðirnar einar og sér leysa ekki allan vanda menntakerfisins

[links]Ragnar Þór Pét­urs­son, for­maður Kenn­ara­sam­bands Íslands, sagði í sam­tali við Kjarnann þegar aðgerð­irnar voru kynntar að hann teldi þær tíma­bærar. „Það hefur blasað við í nokkurn tíma að sá alvar­legi kenn­ara­skortur sem þegar er orð­inn stað­reynd í leik­skólum mun, ef ekk­ert er að gert, ná til grunn­skól­ans innan fárra ára. Hrun í aðsókn í kenn­ara­nám hefur þegar haft áhrif á getu háskól­anna til að halda úti þeirri kennslu og þeim rann­sóknum sem nauð­syn­legar eru á miklum umbylt­ing­ar­tímum í mennta­kerfum heims­ins. Þess vegna er gríð­ar­lega mik­il­vægt að grípa til aðgerða til að efla kenn­ara­menntun í land­inu,“ sagði hann.

Hann taldi þó aðgerð­irnar einar og sér ekki leysa allan vanda mennta­kerf­is­ins en að þær væru samt nauð­syn­legar. „Það sem skiptir kannski mestu máli er að nú er fók­us­inn kom­inn á réttan stað og stjórn­völd hafa tekið á sig þá ábyrgð að stuðla að nauð­syn­legum umbótum áður en það er of seint. Á Íslandi hefur skort á slíka lang­tíma­hugsun og því fagna ég henni. Við sem sam­fé­lag þurfum svo að taka höndum saman og styðja við mennta­kerfið, alveg eins og við eigum að gera við önnur mik­il­væg grund­vall­ar­keri sam­fé­lags­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár