Mynd: Pexels

Samfélagið verður að átta sig á mikilvægi kennarastarfsins

Ef marka má við­brögð við nýrri aðgerða­á­ætlun í mennta­málum hefur náðst breið sátt um hvað gera skuli til að auka veg og gengi kenn­ara­starfs­ins – sér­stak­lega á yngstu skóla­stig­unum.

„Skortur er á kenn­urum með rétt­indi á öllum skóla­stigum og brýnt að finna leiðir til að fjölga þeim sem velja kenn­ara­nám, bregð­ast við þeim vanda sem brott­hvarf nýliða úr starfi felur í sér en einnig að stuðla að því að nýút­skrif­aðir kenn­arar ráði sig til starfa.“

Þannig hljóðar ein klausan í nýrri aðgerða­á­ætlun stjórn­valda til að fjölga kenn­urum sem kynnt var í síð­ustu viku og fjöl­miðlar fjöll­uðu um. Ekki er ofsagt að vanda­mál í mennta­málum hefur verið stig­vax­andi síð­ast­liðin miss­eri og ár. Nýnemum hefur fækkað og færri útskifast en áður sem leik- og grunn­skóla­kenn­arar. Starfið er krefj­andi og getur verið erfitt og hafa þeir, sem mennt­aðir eru til þess, leitað á önnur mið til að minnka álag og fá hærri laun.

Lilja Alfreðs­dóttir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra kynnti aðgerð­irnar þann 5. mars síð­ast­lið­inn en þær fela meðal ann­ars í sér launað starfs­nám, náms­styrk til nem­enda og styrki til starf­andi kenn­ara til náms í starfstengdri leið­sögn. Aðgerð­irnar eiga sem sagt að taka á kenn­ara­skorti í land­inu.

Nemendur býðst launað starfsnám

Í stuttu máli snú­ast aðgerð­irnar út á að frá og með næsta hausti bjóð­ist nem­endum á loka­ári meist­ara­náms til kennslu­rétt­inda á leik- og grunn­skóla­stigi launað starfs­nám. Mark­miðið með þeirri aðgerð er að hvetja nem­endur til þess að klára nám sitt á til­settum tíma og að þeir hefji störf sem fyrst að námi loknu. Starfs­námið skal vera í minnst 50 pró­sent starfs­hlut­falli við leik- eða grunn­skóla í eitt skólaár og fá nem­endur greitt sam­kvæmt kjara­samn­ingi.

Nemendur á loka­ári meist­ara­náms til kennslu­rétt­inda á leik- og grunn­skóla­stigi geta sótt um náms­styrk frá og með næsta hausti. Markmið styrks­ins er að auð­velda nem­endum að sinna loka­verk­efnum sínum sam­hliða laun­uðu starfs­námi og skapa hvata til þess að nem­endur klári nám sitt á til­settum tíma. Styrk­ur­inn nemur alls 800.000 krónum.

Leiðsagnakennarar skipta lykilmáli

Í til­kynn­ing­unni frá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu, sem send var út við til­efnið, kemur fram að mik­il­vægt sé að fjölga kenn­urum í íslenskum skólum sem hafi þekk­ingu á mót­töku nýliða í kennslu. Slíkir leið­sagna­kenn­arar skipti lyk­il­máli við að sporna gegn brott­hvarfi nýút­skrif­aðra kenn­ara úr starfi en mest sé hættan á brott­hvarfi úr kennslu fyrstu þrjú árin.

Í þessu skyni muni mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyti því styrkja Háskóla Íslands og Háskól­ann á Akureyri. „For­sendur þessa styrks verða ann­ars vegar þær að skóla­stjórn­endur styðji umsókn kenn­ara í námið og hins vegar að tryggja þurfi jafna dreif­ingu þess­ara styrkja milli skóla og lands­hluta í því augna­miði að sem flestir skólar lands­ins hafi kenn­ara innan sinna raða með sér­hæf­ingu í starfstengdri leið­sögn.“

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra.

Öflugt menntakerfi forsenda framfara

Lilja segir í sam­tali við Kjarnann að til að ná fram fram­förum í mennta­kerf­inu sé nauð­syn­legt að vinna að sátt og sam­stöðu. Því hafi verið nauð­syn­legt að vinna að aðgerða­á­ætl­un­inni í sam­vinnu við mennta­vís­inda­svið háskól­anna, Kenn­ara­sam­bandið, Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga, atvinnu­lífið og önnur lyk­il­ráðu­neyti.

Hún segir jafn­framt að mik­ill stuðn­ingur sé við aðgerð­irnar og að rík­is­stjórn­inni sé mjög umhugað um að störf kenn­ara öðlist við­ur­kenn­ingu. Öflugt mennta­kerfi sé for­senda fram­fara, sér í lagi þar sem tækni­fram­farir eru eins miklar og raun ber vitni. „Ég held að hægt sé að ná til allra,“ segir hún í því sam­hengi.

Lilja telur sam­fé­lagið vera á spenn­andi veg­ferð og frá­bært sé að eiga í þessu víð­tæka sam­tali. Þörf sé á að fara í afger­andi aðgerðir enda sé þetta stór sam­fé­lags­leg áskorun. „Það er mik­ill áhugi á því hjá öfl­ugum fyr­ir­tækj­unum að koma að svona vit­und­ar­vakn­ingu. Má í því sam­hengi nefna að Kvika hefur stofnað nýjan hvatn­ing­ar­sjóð fyrir kenn­ara­nema.“ Hún segir enn fremur að þau sam­fé­lög sem náð hafa árangri í mennta­málum eigi það sam­eig­in­legt að breiður stuðn­ingur sé við mennta­mál og skiln­ingur á mik­il­vægi þeirrar fjár­fest­ingar.

Samfélagið allt verður að átta sig á mikilvægi kennarastarfsins

Ráðherra segir að þær aðgerðir sem hún kynnti í síð­ustu viku séu ein­ungis fyrsti áfang­inn af þremur. Næsti áfangi mun snú­ast um að fá kenn­ara sem hafa horfið frá kennslu aftur í starfið. „Það er rosa­legur mannauður þarna úti,“ segir hún en til stendur að kynna næstu aðgerðir eftir ár.

Hún bætir því við að í fyrsta lagi verði sam­fé­lagið allt að átta sig á mik­il­vægi kenn­ara­starfs­ins og í öðru lagi verði kenn­ar­arnir sjálfir að finna að starfið þeirra skipti máli.

Framundan séu svaka­lega spenn­andi tímar og telur Lilja að íslenska mennta­kerfið hafi alla burði til að ná fram­úr­skar­andi árangri, ef tryggt sé það hug­ar­far að allir geti lært og allir skipti máli. Hún ætlar sér að ná póli­tískri sátt um mennta­stefn­una og telur hún að ekki sé eftir neinu að bíða enda verk­efnin aðkallandi.

Mikilvægt er að kennarastéttin finni hvers virði hún er.
Mik­il­vægt er að kenn­ara­stéttin finni hvers virði hún er.

Það hefur skort langtímahugsun

Ragnar Þór Pét­urs­son, for­maður Kenn­ara­sam­bands Íslands, telur aðgerð­irnar tíma­bærar. „Það hefur blasað við í nokkurn tíma að sá alvar­legi kenn­ara­skortur sem þegar er orð­inn stað­reynd í leik­skólum mun, ef ekk­ert er að gert, ná til grunn­skól­ans innan fárra ára. Hrun í aðsókn í kenn­ara­nám hefur þegar haft áhrif á getu háskól­anna til að halda úti þeirri kennslu og þeim rann­sóknum sem nauð­syn­legar eru á miklum umbylt­ing­ar­tímum í mennta­kerfum heims­ins. Þess vegna er gríð­ar­lega mik­il­vægt að grípa til aðgerða til að efla kenn­ara­menntun í land­inu,“ segir Ragnar Þór í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Hann telur aðgerð­irnar einar og sér ekki leysa allan vanda mennta­kerf­is­ins en þær séu samt nauð­syn­legar. „Það sem skiptir kannski mestu máli er að nú er fók­us­inn kom­inn á réttan stað og stjórn­völd hafa tekið á sig þá ábyrgð að stuðla að nauð­syn­legum umbótum áður en það er of seint. Á Íslandi hefur skort á slíka lang­tíma­hugsun og því fagna ég henni. Við sem sam­fé­lag þurfum svo að taka höndum saman og styðja við mennta­kerfið, alveg eins og við eigum að gera við önnur mik­il­væg grund­vall­ar­keri sam­fé­lags­ins,“ segir Ragnar Þór.

Fagnar samstöðunni

Kolbrún Þ. Páls­dóttir, for­seti Mennta­vís­inda­sviðs HÍ, sagð­ist í sam­tali við RÚV eftir að aðgerð­irnar voru kynntar í síð­ustu viku fagna því að þær næðu bæði til kenn­ara­nema og starf­andi kenn­ara. Hún sagði það mik­il­vægt að grípa til aðgerða og reyndar væri fólk þegar farið að sjá meiri aðsókn í kenn­ara­nám.

„Það er auk­inn áhugi og umræða um menntun í sam­fé­lag­inu þannig að ég hef þá trú að þessar aðgerðir séu hvatn­ing." Hún sagð­ist jafn­framt fagna mjög sam­stöð­unni í kringum þessar aðgerðir. „Sam­fé­lagið í heild er að stíga hér fram og styðja við bakið á kenn­urum."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár