Mynd: Mummi Lú

Flettir nótum fyrir Víking

Jakob Arnar Baldursson píanó­nemandi fletti nótum fyrir Víking Ólafsson á tvennum tónleikum sem hann hélt ásamt Yuju Wang í Hörpu. Jakob Arnar segist næstum hafa fengið hjarta­áfall þegar hann var beðinn um að vera flettari á tónleikum þessara skærustu píanóstjarna samtímans.

Víkingur og Yuja Wang sem eru meðal skærustu stjarnanna í píanó­heiminum um þessar mundir héldu á dögunum tvenna tónleika í Hörpu. Þetta var í fyrsta sinn sem Yuja Wang kom fram á Íslandi en tónleikarnir í Eldborg voru upphafið á tónleika­ferð hennar og Víkings um heiminn. Þau munu meðal annars spila í Carnegie Hall í New York, Royal Festival Hall í London, Fílharmóníusal Berlínar og Parísar.

Tveir flyglar var yfir­skrift tónleik­anna í Hörpu og sagði í kynningu að þessir stjörnu­píanistar væru nú að sameina krafta sína í fyrsta sinn. Efnis­skráin væri bæði litrík og kraft­mikil, allt frá angur­værri rómantík til leiftrandi tónlistarlegrar flugelda­sýningar.

Beðið eftir Víkingi og YujaPíanó­leik­ur­unum var fagnað með lófa­klappi og húrra­hrópum þegar þau birt­ust á svið­inu í Eld­borg­ar­sal Hörpu.

Fyrri tónleikarnir voru sunnudags­kvöldið 20. október og hinir síðari daginn eftir, að kvöldi mánudags.

…
Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár