Svandís: Í raun og veru hreinn meirihluti Sjálfstæðisflokksins við völd

Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar gagn­rýndu þing­menn Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar harð­lega í dag fyrir að hafa ekki tekið þátt í sér­stökum umræðum í gær.

Svandís Svavarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri grænna.
Svandís Svav­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna. Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Veru­leik­inn er sá, tel ég vera póli­tískt, að við séum að horfa upp á það…miðað við þessa umræðu hér að í raun og veru sé hér hreinn meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks­ins við völd með stuðn­ingi tveggja flokka sem kjósa að tjá sig ekki í stórum málum.“ Þetta sagði Svandís Svav­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna, á þingi í dag.

Fjöl­margir þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar gagn­rýndu þing­menn Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar harð­lega fyrir að hafa ekki tekið þátt í tveimur sér­stökum umræðum í þing­inu í gær. Þetta gerðu þing­menn­irnir við upp­haf þing­fundar í dag undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta. Umræð­urnar voru ann­ars vegar um skýrslu um nið­ur­færslu verð­tryggðra fast­eigna­lána og hins vegar skil á skýrslu um eignir Íslend­inga á aflands­svæðum.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, reið á vaðið og sagði þetta hafa vakið athygli hans og margra ann­arra. Ekki síst í ljósi þess að engin mál frá rík­is­stjórn­inni væru á dag­skránni í dag og rödd þess­ara flokka heyrð­ist því ekki í hinni lýð­ræð­is­legu umræðu. „Maður veltir fyrir sér hvort þetta séu hin nýju stjórn­mál sem þessir tveir flokkar hafa boðað.“ 

Svandís Svav­ars­dóttir, þing­flokks­for­maður VG, kom í kjöl­farið. Hún sagði þessa tvo stjórn­ar­flokka segja pass í þessum stóru málum. Það væri ekki góður bragur á þing­stör­f­unum ef svona ætti þetta að vera, og bað for­seta Alþingis að ræða málið. Ásta Guðrún Helga­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, tók svo undir með þeim og kvart­aði yfir því að flokk­arnir hafi ekki séð sér fært að taka þátt í umræð­unum. Henni þætti það mjög leitt. „Það hefur verið van­inn, jafn­vel hjá litlum þing­flokkum, að taka þátt í sér­stökum umræðum, jafn­vel þó það sé erfitt.“ Oddný Harð­ar­dóttir, þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, sagði þögn­ina hafa verið ærandi. „Er ekki einmitt gert ráð fyrir því að þá komi rödd allra þing­flokka fram, sjón­ar­mið og áherslur í málum sem dregin eru hér fram í sér­stökum umræðum?“

Birgir Ármanns­son svar­aði þing­mönnum stjórn­ar­and­stöð­unnar og sagði að málið sé „ein­hver sú kol­vit­laus­asta fýlu­bomba sem ég hef séð stjórn­ar­and­stöðu reyna að sprengja.“ Hann sagði það átak­an­legt ef mál­efna­þurrð stjórn­ar­and­stöð­unnar væri með þessum hætti.

Orð Svan­dísar lét hún falla eftir að Birgir Ármanns­son, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafði komið Viðreisn og Bjartri fram­tíð til varnar. Enginn þing­maður Við­reisnar eða Bjartrar fram­tíðar tók til máls í þessum umræðum í dag. Nicole Leigh Mosty, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, ræddi málið síðar undir liðnum störf þings­ins. Hún sagði að engum ætti að dylj­ast að Björt fram­tíð hefði verið á móti nið­ur­færslu verð­tryggðra fast­eigna­lána, en hún hafi ekki tekið þátt í umræð­unni því hún hefði ekk­ert meira um málið að segja. Henni þætti tíma þings­ins betur varið í annað en keppni um það hver tal­aði hæst.

Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisnar, svar­aði líka gagn­rýn­inni undir liðnum störf þings­ins. Hún benti á að það hefði tekið Benedikt Jóhann­es­son, for­mann Við­reisnar og núver­andi fjár­mála­ráð­herra, mjög stuttan tíma að birta báðar þær skýrslur sem um var rætt eftir að hann tók emb­ætti. Flokk­ur­inn hafi ekki verið til þegar leið­rétt­ingin var gerð og því hafi flokk­ur­inn ekki form­lega afstöðu í því máli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár