Spyr hvort stefnan sé að ríkisvæða heilbrigðisþjónustuna

Halldóra Mogensen þing­maður Pírata sagði visst munstur að koma fram sem gæti verið vís­bend­ing um stefnu­breyt­ingu í heil­brigð­is­málum á Íslandi.

Halldóra Mogensen þing­maður Pírata spurði Svandísi Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra út í fjár­hags­vand­ræði heima­þjón­ust­unnar Karitas sem sinnir sjúk­lingum í heima­húsum vegna alvar­legra sjúk­dóma í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag.

Halldóra sagði visst munstur að koma fram sem gæti verið vís­bend­ing um stefnu­breyt­ingu í heil­brigð­is­málum á Íslandi. „Við sjáum þetta með rekstur sjúkra­bíla, GET og Hugarafl og nú Karitas,“ sagði Halldóra og spurði Svandísi hvort það væri hennar stefna að rík­i­s­væða heil­brigð­is­þjón­ustu í auknum mæli. „Ef svo er, telur ráð­herra væn­legt að gera breyt­ingar á því hvernig heil­brigð­is­þjón­ustu er háttað án þess að form­leg stefna sé komin fram og umræða hafi átt sér stað um hana?“

Svandís sagði það heyra undir hennar ráðu­neyti og emb­ætti að tryggja að ef samn­ingur Karitas renni út sé tryggt að Land­spít­al­inn og heilsu­gæslan taki við kefl­inu og ekk­ert rof verði á þeirri þjón­ustu. „Það er auð­vitað meg­in­mark­miðið.“

Svandís sagði enn­fremur að í skýrslu frá Rík­is­end­ur­skoðun komi fram gagn­rýni á að kaupum á heil­brigð­is­þjón­ustu sé ekki eins vel háttað eða með nægi­lega mark­vissum hætti.

„Ef hátt­virtur þing­maður sér stefnu­breyt­ingu myndi ég kannski vilja orða það sem svo að stefnu­breyt­ingin væri að mínu viti fólgin í því fyrst og fremst að freista þess að hafa heild­ar­mynd­ina undir í öllum mínum ákvörð­unum. Það er það sem ég er að reyna að gera. Og tryggja fyrst og fremst þjón­ust­una og sam­fellu í henni og öryggi sjúk­linga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár