Lækningar eiga að snúast um meira en að halda fólki á lífi

„Lífsstíls­lækningar hjálpa fólki að viðhalda grunn­stoðum heilsunnar,“ segir dr. Thomas Ragnar Wood, bresk-íslenskur læknir og prófessor í barna­lækningum og tauga­vísindum, sem hefur einnig sérhæft sig í lífsstíls­lækningum, það er lækningum sem hafa það að markmiði að tryggja heilsu á öllum æviskeiðum.

Tækifæri til lífsstílsbreytinga
Tækifæri til lífs­stíls­breyt­inga Thomas Ragnar Wood ólst upp í Banda­ríkj­unum og Bret­landi. Hann á íslenska móður og fékk fisk, lifur og kart­öflur í mat­inn í Íslands­heim­sóknum til ömmu og afa, áður en hann var sendur í sum­ar­búðir. Lífstíls­lækn­ingar eru honum hug­leiknar og hann segir íslenskt sam­fé­lag búa yfir mörgum styrk­leikum sem greiða leið­ina fyrir inn­leið­ingu lífs­stíls­lækn­inga, meðal ann­ars sem fel­ast í matar­æði og úti­vist. Mynd: Golli

Tommi.“

Þannig kynnir dr. Thomas Ragnar Wood sig fyrir blaða­manni á Lækna­dögum þar sem hann var að leggja lokahönd á undir­búning fyrir málstofu þar sem hann fjallaði um lífsstíls­lækningar. „Mamma er íslensk,“ segir hann á íslensku áður en hann skiptir yfir í enskuna, það er honum eðlis­lægara. „Pabbi er breskur og við bjuggum í Bretlandi en lengst af í Banda­ríkjunum en mamma flutti aftur til Íslands fyrir 15 árum.“

Tommy, eins og hann er gjarnan kallaður (með y, ekki i), er læknir og prófessor í barna­lækningum og tauga­vísindum við Washington-háskóla og stofnandi og stjórn­andi Félags lífsstíls­lækninga á Bretlandi (e. British Society of Lifestyle Medicine), en síðustu ár hefur hann sérhæft sig í lífsstíls­lækningum. Erindi hans á nýafstöðnum Lækna­dögum fjallaði einmitt um lífsstíls­lækningar, annars vegar um vísinda­legan grunn þeirra og hins vegar um tauga­vísindin sem liggja þar að baki. 

Lífsstíls­lækningar (e. Lifestyle Medicine) hafa verið að …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Andrés Arnalds skrifaði
    Góð umfjöllun um mikilvægt efni.
    Því tengt vil ég vekja athygli á "hreyfingu" eða nálgun í samþættingu félagslegrar- og heilbrigðisþjónustu sem nýtur vaxandi fylgis. Kallað "Social Prescribing".
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár