Breska þingið kaus með Brexit

Mikill meiri­hluti þing­manna í neðri deild breska þings­ins kaus með frum­varpi Theresu May um að 50. grein Lisabon-sátt­mál­ans yrði virkjuð.

Theresa May varð forsætisráðherra Bretlands eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um úrsögn Breta síðasta sumar.
Theresa May varð for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands eftir þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una um úrsögn Breta síð­asta sumar. Mynd: EPA

Neðri deild breska þings­ins sam­þykkti frum­varp Theresu May, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, um að 50. grein Lisabon-sátt­mál­ans yrði virkjuð og þannig farið fram á úrsögn Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu. Atkvæða­greiðslan fór fram í þing­inu í gær­kvöldi en síð­asta sumar hafði rík­is­stjórn David Cameron, for­vera May í emb­ætti, efnt til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um hvort Bretar vilji vera áfram í ESB.

Alls voru það 498 þing­menn sem kusu með frum­varpi for­sæt­is­ráð­herr­ans en 114 þing­menn kusu á móti. Áköf umræða hefur farið fram í þing­inu und­an­farna tvo daga síðan frum­varpið var lagt fram. Bresk stjórn­völd þurfa þess vegna ekki að breyta áætl­unum sínum um að fara fram á úrsögn fyrir lok mars á þessu ári.

Ekki stóð til að gefa breska þing­inu atkvæð­is­rétt um Brexit enda hafði þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla farið fram og bresk stjórn­völd litu svo á að ekki þyrfti einnig að óska eftir stuðn­ingi þings­ins. Hæsti­réttur í Bret­landi komst svo að þeirri nið­ur­stöðu undir lok jan­úar að þingið yrði að veita stjórn­völdum umboð til þess að fara fram á úrsögn úr ESB.

Í aðdrag­anda þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar síð­asta sumar voru stjórn­mála­flokk­arnir klofnir í afstöðu sinni til já/nei spurn­ing­ar­innar sem leggja átti fyrir Breta. Eftir að nið­ur­staðan lá fyrir sagði David Cameron af sér sem for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Íhalds­flokks­ins enda hafði hann verið ein­dreg­inn tals­maður þess að Bretar ættu áfram að taka þátt í Evr­ópu­sam­band­inu.

Í aðdrag­anda atkvæða­greiðsl­unnar í þing­inu fylgdu þing­menn flokkslínum að mestu, með fáeinum und­an­tekn­ingum. Í breskum fjöl­miðlum er helst fjallað um klofn­ing Verka­manna­flokks­ins en Jeremy Corbyn, for­maður flokks­ins, hafði óskað eftir því að allir þing­menn flokks­ins myndu kjósa með frum­varp­inu. Fimmt­ungur þing­manna flokks­ins (47 af 229 þing­mönnum) hunds­aði þau boð og greiddi atkvæði gegn úrsögn. Aðeins einn íhalds­þing­maður kaus gegn frum­varp­inu (af 329 þing­mönnum), sjö frjáls­lyndir demókratar (af níu þing­mönnum) og 50 þing­menn þjóð­ar­flokks Skota (af 54 þing­mönnum).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár