Þolmarkadagur jarðarinnar er runninn upp

Mann­kynið hefur frá upp­hafi árs notað þær auð­lindir sem jörðin er fær um að end­ur­nýja á heilu ári. Til þess að við­halda neysl­unni þyrfti 1,7 jörð.

Losun koldíoxíðs út í andrúmsloftið á stóran þátt í því að þolmarkadagur jarðar er jafn snemma á árinu og raun ber vitni.
Losun koldí­oxíðs út í and­rúms­loftið á stóran þátt í því að þol­marka­dagur jarðar er jafn snemma á árinu og raun ber vitni. Mynd: EPA

Þol­marka­dagur jarðar er í dag en hann segir til um það hvenær mann­kynið hefur notað þær auð­lindir sem jörðin er fær um að end­ur­nýja á einu ári. Þetta þýðir að mann­kynið þyrfti um 1,7 jörð til þess að standa undir neyslu og notkun á nátt­úru­auð­lindum.

Dagurinn fær­ist til um hátt í mánuð á milli ára en í fyrra var jörðin komin að þessum þol­mörkum þann 22. ágúst. Ástæðan er sú að dag­setn­ingin í fyrra var mun síðar á árinu en á fyrri árum vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs. Það hefur engu að síður gerst áður að þol­marka­dag­ur­inn lendi fyrr á árinu en núna í ár, hann hefur aldrei verið jafn snemma og árið 2018 en þá féll hann á 25. júlí. [adspot]

Það eru sam­tökin Global Footprint Network sem reikna það út á hverju ári hvenær dag­ur­inn rennur upp. Á vef sam­tak­anna segir að mann­kynið við­haldi halla í notkun auð­linda með því að ganga á nátt­úru­auð­lindir á borð við skóg­lendi , beiti­lönd og fisk auk þess sem neysla manns­ins fylgi alls kyns rusl og annar úrgang, þá helst losun koldí­ox­iðs út í and­rúms­loftið.

Þolmarkadagur á hverju ári frá 1970

„Rétt eins og banka­yf­ir­lit heldur utan um tekjur og gjöld þá mælir Global Footprint Network þörf mann­kyns og fram­boð vist­kerf­is­ins á auð­lindum og afnotum. Dag­setn­ing þol­marka­dags jarðar er svo byggð á þessum útreikn­ingum,“ segir á heima­síðu Global Footprint Network.

Útreikn­ingur á því hvenær búið er að nýta árs­fram­leiðslu jarð­ar­innar hefur farið fram á hverju ári síðan árið 2006 en þá bar þol­marka­dag­inn upp á 18. ágúst. Samtökin hafa farið yfir þau gögn sem til eru fyrir neyslu og end­ur­nýjun auð­linda en gögnin ná aftur til árs­ins 1961. Samkvæmt útreikn­ingum sam­tak­anna hefur neysla mann­kyns verið meiri en geta jarð­ar­innar til að end­ur­nýja auð­lindir sínar allt frá árinu 1970. Þessum þol­mörkum var náð þann 30. des­em­ber árið 1970 en frá þeim tíma hefur dag­ur­inn nán­ast stöðugt hliðr­ast til þannig að hann beri upp fyrr á árinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár