Póstum Macron lekið á netið

Tölvu­hakk­arar komust yfir tölvu­pósta Emmanu­els Macron, for­seta­fram­bjóð­anda í Frakk­landi.

Tölvu­póstar sem full­yrt er að komi frá kosn­inga­skrif­stofu Emm­anu­el Macrons, að því er segir í umfjöllun Reuters og fleiri fjöl­miðla, var í gær lekið á netið.

Frakk­ar velja sér nýj­an for­seta á sunnu­dag, í annarri umferð kosn­ing­anna, og mun miðju­maður­inn Macron þá keppa við Mar­ine Le Pen um for­seta­stól­inn. Macron hefur talað fyrir mik­il­vægi sam­vinnu Evr­ópu­þjóða, meðal ann­ars á vett­vangi Evr­ópu­sam­bands­ins, á meðn Le Pen talar fyrir aðskiln­aði frá Evr­ópu­sam­band­inu og þjóð­ern­is­hyggju þegar kemur að efna­hags­málum. Hún seg­ist vilja burt úr ESB og evr­unni sömu­leiðis.

Skoð­ana­k­ann­an­ir hafa til þessa bent til þess að Macron væri nokkuð ör­ugg­ur að hafa sig­ur á Le Pen, en síð­ustu kann­an­ir hafa bent til þess að hann nyti hylli um 60% Frakka á móti 40% Le Pen.

Macron hef­ur í þess­ari viku þurft að svara fyr­ir orðróm um að hann eigi af­l­ands­reikn­ing á Bahama og hef­ur hann lagt fram kæru vegna þess, og þver­neitar að fela eignir í skatta­skjólum.

Í yfir­lýs­ingu frá fram­boði Macrons er tölvu­árásin for­dæmd, en jafn­framt tekið fram að það mikla magn gagna, sem stolið var, sýni fyrst og fremst eðli­lega og lög­lega hluti.

Mikil spenna er í Frakk­landi vegna kosn­ing­anna. Er talið að kosn­inga­þátt­taka muni skipta miklu máli, og vinnu þá mikil kosn­inga­þátt­taka freka með Macron.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár