Ísland langt á eftir Norðurlöndunum í fjölmiðlafrelsi

Ísland er langt á eftir hinum Norð­ur­lönd­unum þegar kemur að frelsi fjöl­miðla, sam­kvæmt lista Frétta­manna án landamæra (e. Reporters without borders), sem gef­inn er út í aðdrag­anda Alþjóða­dags fjöl­miðla­frelsis, en hann er á morgun.

Ísland er í nítj­ánda sæti á list­anum um frelsi fjöl­miðla. Það er tveimur sætum hærra en í fyrra, þegar Ísland var í 21. sæti.

„Þrátt fyrir að stjórn­ar­skráin tryggi algjört mál­frelsi hefur staða blaða­manna versnað frá árinu 2012 vegna verri sam­skipta milli stjórn­mála­manna og fjöl­miðla,“ segir í umfjöllun sam­tak­anna. Meðal þess sem þau hafa gagn­rýnt er mál­sókn Þóreyjar Vil­hjálms­dóttur, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­manns Hönnu Birnu Krist­jáns­dóttur, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, á hendur tveimur blaða­mönnum. Nið­ur­skurður á útgjöldum til Rík­is­út­varps­ins.

Ísland er eina ríki Norð­ur­land­anna sem er ekki meðal efstu tíu ríkj­anna. Finnland er á toppnum en Noregur og Danmörk eru í þriðja til fjórða sæti og Svíþjóð er í átt­unda sæti. Önnur ríki á meðal efstu tíu ríkj­anna eru Holland, Nýja-Sjáland, Kosta ríka, Sviss, Írland og Jamaíka. Kanada og Úrúgvæ eru í sæt­unum fyrir ofan og neðan Ísland.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár