Fylgið hreyfist um miðjuflokkana

Í nýj­ustu kosn­inga­spánni má sjá að fylgi við stjórn­mála­flokka virð­ist helst hreyfast í kringum „miðju­flokk­ana“. Kosn­inga­spáin var gerð föstu­dags­kvöldið 13. októ­ber.

Fylgi við Sam­fylk­ing­una eykst nær stöðugt í kosn­inga­spánni og nú er svo komið að 11,9 pró­sent kjós­enda hyggj­ast kjósa flokk­inn í Alþing­is­kosn­ing­unum 28. októ­ber. Fylgi við Pírata heldur áfram að minnka og er nú 9,5 pró­sent og minna en fylgi við Miðflokk Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.

Mið­flokk­ur­inn er með 9,7 pró­sent stuðn­ing í kosn­inga­spánni sem gerð var föstu­dags­kvöldið 13. októ­ber, þegar rétt rúmar tvær vikur eru til kosn­inga. Í kosn­inga­spánni eru nið­ur­stöður fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­ana á fylgi stjórn­mála­flokka vegnar eftir fyrir fram ákveðnum við­miðum. Baldur Héð­ins­son stærð­fræð­ingur gerir kosn­inga­spána í sam­starfi við Kjarnann.

[chart]

Vin­sæl­asti flokkur lands­ins er sem fyrr Vinstri grænir. Stuðn­ingur við flokk Katrínar Jak­obs­dóttur hefur hins vegar dalað und­an­farna viku eða svo og er nú með stuðn­ing 25,1 pró­sent kjós­enda, miðað við 27 pró­sent stuðn­ing í kosn­inga­spánni 7. októ­ber. Á sama tíma virð­ist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafa náð jafn­vægi í um 23 pró­sent fylgi. Í nýj­ustu kosn­inga­spánni er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með 22,2 pró­sent stuðn­ing.

[chart]

Viðreisn og Björt fram­tíð eru enn með lítið fylgi og eiga tak­mark­aða mögu­leika á að ná mönnum á þing. Viðreisn er með 3,8 pró­sent stuðn­ing í kosn­inga­spánni og Björt fram­tíð með 3,3 pró­sent.

[links]Nýjustu vend­ingar í Viðreisn birt­ast hugs­an­lega ekki sterkt í þessum nýj­ustu tölum enda var nýjasta könn­unin, sem er til grund­vallar kosn­inga­spánni, gerð á tveggja vikna tíma­bili, frá 29. sept­em­ber til 12. októ­ber. Benedikt Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi for­maður flokks­ins, vék fyrir Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur mið­viku­dags­kvöldið 11. októ­ber.

Það má segja að það hafi verið kom­inn tími fyrir Viðreisn til þess að bregð­ast við síminnk­andi fylgi flokks­ins að und­an­förnu. Áhuga­vert verður að fylgj­ast með kosn­inga­spám næstu daga og áhrifin sem for­manns­skiptin kunna hafa haft.

[adspot]

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er enn í vand­ræðum með að afla fylgis. Allar götur síðan Mið­flokk­ur­inn varð til eftir klofn­ing Sig­mundar Davíðs og stuðn­ings­manna hans úr Fram­sókn­ar­flokknum hefur fylgi Fram­sókn­ar­manna minnkað nær stöðugt. Flokkur Sigurðar Inga Jóhanns­sonar er nú með 6,4 pró­sent.

Lesa má í líkur fram­boð­anna á þing­manna­fjölda í kosn­inga­mið­stöð Kjarnans hér. Þar má einnig sjá sam­an­lagðan þing­styrk tveggja eða fleirri flokka sem gætu hugs­an­lega ímyndað sér að vinna saman í rík­is­stjórn að kosn­ingum loknum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár