Segir heilbrigðisfrumvarp repúblikana dauðadæmt

Nýtt heilbrigðis­frumvarp verður ekki samþykkt og er dauðadæmt, ef marka má spá John McCain.

Öldunga­deildar­þing­maðurinn John McCain úr repúblikana­flokknum í Banda­ríkjunum telur allar líkur á því að heilbrigðis­frumvarp flokks hans verði ekki samþykkt. Reuters greinir frá.

Upphaf­lega hafði verið áætlað að frum­varpið yrði lagt fyrir þingið fyrir þjóð­hátíðar­daginn 4. júlí. Forystu­mönnum repúblikana­flokksins tókst hins vegar ekki að afla stuðnings við frum­varpið fyrir þann tíma. Þingmenn koma saman í Washington á ný í dag, mánudag.

„Mín skoðun er að það [frum­varpið] er örugglega bara dautt,“ sagði McCain í sjónvarps­viðtali á CBS-sjónvarps­stöðinni. „Ég gæti haft rangt fyrir mér. Ég hélt til dæmis að ég yrði forseti Banda­ríkjanna. En ég óttast að þetta muni ekki hafast.“

Enginn demókrati á bandaríska þinginu mun greiða atkvæði með frum­varpinu í öldunga­deild þingsins. Þingmenn repúblikana­flokksins hafa verið á ferð um ríki sín þar sem margir hafa fengið að heyra hörð viðbrögð við frum­varpinu.

Heilbrigðis­frumvarpinu er ætlað að koma í stað heilbrigðislagana sem samþykkt voru í tíð Baracks Obama og hafa verið kölluð Obamacare.

Nýja frum­varpið hefur verið gagnrýnt úr mörgum áttum enda þykir ljóst að það muni skerða réttindi almennings á heilbrigðis­þjónustu verulega. Gagn­rýnendur hafa sagt frum­varpið vera skatta­afslátt fyrir ríkt fólk með því að afnema heilbrigðis­tryggingar fyrir fátækari Bandaríkja­menn og gera heilbrigðis­þjónustu dýrari þá sem eldri eru og fyrir þá sem þurfa á henni að halda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár