Komu sér ekki saman um refsiaðgerðir

Utan­rík­is­ráð­herrar G7 ríkj­anna sam­þykktu ekki til­lögu Breta um að beita Rússa frek­ari refsi­að­gerðum vegna efna­vopna­árás­ar­innar í Sýrlandi. Rex Tiller­son, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, er nú kom­inn til Rúss­lands til fundar við Sergei Lavrov.

Fulltrúar ESB, Þýskalands, Bandaríkjanna, Kanada, Ítalíu, Frakklands, Bretlands og Japans.
Full­trúar ESB, Þýska­lands, Banda­ríkj­anna, Kanada, Ítalíu, Frakk­lands, Bret­lands og Japans. Mynd: EPA

G7 ríkin komu sér ekki saman um auknar refsi­að­gerðir gagn­vart Rúss­landi á fundi sínum í gær og í dag. Boris Johnson, utan­rík­is­ráð­herra Bret­lands, hafði lagt fram til­lögu þess efnis að refsi­að­gerðir yrðu hertar vegna efna­vopna­árá­sinnar í Idlib-hér­aði í Sýrlandi í síð­ustu viku. Sýrlensk stjórn­völd, sem Rússar hafa aðstoðað í stríð­inu í Sýrlandi, eru sögð bera ábyrgð á árásinni.

Angelino Alfano, utan­rík­is­ráð­herra Ítalíu, sagði eftir fund­inn að G7 hóp­ur­inn vildi ekki stilla Rússum upp við vegg, heldur kysi frekar sam­ræður við þá, sam­kvæmt BBC. Fund­ur­inn var hald­inn í borg­inni Lucca á Ítalíu. Ríkin telji að Rússar hafi þau áhrif sem þarf til að þrýsta á Bashar al-Assad og fá hann til þess að virða vopna­hlé.

Rex Tiller­son, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, fór beint af fund­inum til Moskvu, þar sem hann mun funda með stjórn­völdum. Fundur G7 ríkj­anna var ætl­aður til þess að stilla saman strengi ríkj­anna gagn­vart Sýrlandi fyrir þann fund.

Þrátt fyrir að ekki hafi náðst sam­komu­lag um refsi­að­gerðir sagði Boris Johnson að hann liti ekki á það sem ósigur. Það væri sam­komu­lag um refsi­að­gerðir ef frek­ari sann­anir fyrir ábyrgð­inni á efna­vopna­árásinni fengjust.

Þá voru utan­rík­is­ráð­herr­arnir sam­mála um fram­tíð Assad Sýr­lands­for­seta. „Það er okkur öllum ljóst að valda­tíð Assad-fjöl­skyld­unnar er að líða undir lok,“ sagði Tiller­son. Hann hlaut einnig stuðn­ing á fund­inum við eld­flauga­árás Banda­ríkja­manna, sem þeir gerðu á her­flug­völl til að bregð­ast við efna­vopna­árásinni sem varð 89 að bana.

Tiller­son sagði eld­flauga­árás­ina hafa verið nauð­syn­lega sem varn­ar­mál í Banda­ríkj­unum. Það mætti ekki til þess hugsa að efna­vopn sýr­lenskra stjórn­valda lentu í fórum Íslamska rík­is­ins eða ann­arra hryðju­verka­hópa sem gætu og vildu ráð­ast á Banda­ríkin eða banda­menn þeirra. Hann er nú kom­inn til Moskvu, og mun funda með Sergei Lavrov, utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands, á morgun.

Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seti ræddi við blaða­menn í dag og líkti ásök­un­unum um efna­vopna­árás­ina við það þegar sagt var að Saddam Hussein, þáver­andi ein­ræð­is­herra Íraks, byggi yfir miklu magni efna­vopna. Það reynd­ist síðar ekki vera rétt. „Þetta minnir mig á atburð­ina 2003 þegar erind­rekar Banda­ríkj­anna hjá Örygg­is­ráð­inu sýndu það sem þeir sögðu að væru efna­vopn sem fund­ust í Írak. Við höfum séð þetta allt áður,“ sagði Pútín við blaða­menn í dag. 

Pútín sagði líka að Rússar hefðu upp­lýs­ingar um það að Banda­ríkja­menn áform­uðu fleiri eld­flauga­árásar á Sýrland, og að áform væru uppi um að setja á svið fleiri efna­vopna­árásir. Það ætti að koma fyrir efna­vopnum og kenna sýr­lenskum stjórn­völdum um. Hann færði engar sönnur á þetta.

Pútín sagði jafn­framt að Rússar myndu óska eftir því að Sam­ein­uðu þjóð­irnar rann­sök­uðu efna­vopna­árás­ina í Idlib.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár