Refsiramminn fylltur hjá Hreiðari Má og Magnúsi

Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, var dæmdur í sex mán­aða fang­elsi í Marple-mál­inu í morgun vegna þess að dóm­ur­inn var hegn­ing­ar­auki við fimm og hálfs árs dóm sem hann afplánar nú þegar vegna Al-Thani máls­ins. Refsiramm­inn fyrir fjár­drátt­ar­brot er sex ár að hámarki og því hefur refsiramm­inn verið fylltur með hálfs árs dómnum í morgun. RÚV vekur athygli á þessu.

Það sama gildir um Magnús Guð­munds­son, sem fékk átján mán­aða dóm í mál­inu í morgun, sem fyllir refsirammann, en hann afplánar fjög­urra og hálfs árs dóm vegna Al-Thani máls­ins Dómurinn sem var kveð­inn upp yfir Hreiðari í morgun er sá þriðji sem hann hlýtur á átta mán­uðum. Tveir þeirra eiga þó vænt­an­lega eftir að fara fyrir Hæsta­rétt.

Þriðja málið er mark­aðs­mis­notk­un­ar­málið svo­kall­aða, en þar var Magnús sýkn­aður og Hreiðari var ekki gerð sér­stök refs­ing til við­bótar. Í mál­inu fór sak­sókn­ari fram á að refs­ing yrði þyngri en refsiramm­inn, sem er heim­ilt þegar um síbrot er að ræða. Ekki var orðið við því.

Hreiðar Már var ákærður fyrir fjár­drátt og umboðs­svik í Marple-mál­inu. Magnús var ákærður fyrir hlut­deild í fjár­drætti og umboðs­svikum. Málið, eins og emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara lagði það upp, snýst um til­færslu á um átta millj­örðum króna úr sjóðum Kaup­þings til félags­ins Marple Holding, í eigu Skúla Þor­valds­sonar fjár­festis, án þess að lög­mætar við­skipta­legar ákvarð­anir lægju þar að baki. Skúli hlaut sex mán­aða dóm í mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár